Laugardagur 28 Oct 2006

Færum klukkuna á vetrartíma í nótt

Ég veit ekki hvort ég veld ykkur vonbrigðum þó ég segi ekki frá ferðinni okkar í máli, láti myndirnar bara nægja. Hann Palli minn var svo duglegur að skrifa dagbók á fartölvuna, og setti það svo allt inn á bloggið sitt (sjá Palli í Stóradal hér til hliðar), ef þið hafið áhuga þá er þetta þar í smáatriðum. Þetta var mjög fróðleg og skemmtileg ferð, maður upplifir alltaf eitthvað nýtt, sér stórkostlegar byggingar og landslag og hvað fólk hefur ólíkan lífsstíl. Það er hægt að læra margt á svona ferðum. Við vorum einstaklega heppin með veður, því það er ekki sjálfgefið að fá gott veður á þessum árstíma. En okkur var að mestu hlíft við rigningu það var ekki fyrr en við áttum þrjá tíma ófarna heim að það byrjaði að rigna og okkur var sagt að hér í Portúgal hefði rignt næstum stanslaust á meðan við vorum í burtu. Það mátti líka sjá á gróðrinum, allt svo fallega grænt á litinn nema auðvitað trén sem fella laufið á þessum árstíma. Mér fannst mikill munur á gróðri hér og á Spáni þar sem víða er eins og sviðin jörð eftir þurrka og hita sumarsins. Það er þó merkilegt hvað olívurtré og vínviður virðast lifa góðu lífi þó lítið rigni.

Það hefur verið nóg að gera hjá okkur síðan við komum heim, Palli er búinn að slá grasið og klippa allt hekk sem finnst á lóðinni og ég hef verið að klippa rósirnar og önnur blóm sem eiga að fara að hvíla sig fyrir næsta sumar. Við erum byrjuð í leikfiminni og hjóluðum svo í dag í 25 stiga hita. það var mjög notalegt að finna heita goluna leika um sig, hlusta á fuglasöng og lækjarnið þar sem við hjóluðum eftir fáförnum vegi.

Nú verður klukkunni seinkað hjá okkur í nótt og þá verður sami tími hjá okkur og á Íslandi.

Posted by Þórunn at 18:08:32 | Permanent Link | Comments (1) |

þriðjudagur 24 Oct 2006

Upphaf ferðasögu

Ég veit varla hvar á að byrja þessa ferðasögu en ég er búin að setja inn myndir, á myndageymsluna á netinu, slóðin er til hægri á síðunni. Fastir lesendur muna ef til vill þegar ég setti inn mynd af mér að ganga með prik úti í skógi. Þetta var nú bara grín en síðustu gestir okkar Jóna og Guðni komu færandi hendi, semsagt með alvöru stafi svo eftirleiðis verða prikin notuð til stuðnings plöntum. Þessir "alvöru" stafir voru teknir með í ferðina og komu að góðum notum, voru jafnvel notaðir í staðinn fyrir þrífót sem varð eftir heima, þegar ég var að taka myndir í hálfrökkrinu í Mosqunni í Cordoba. Hér má sjá mynd því til sönnunar, auðvitað var Palli myndasmiðurinn.

Posted by Þórunn at 22:28:38 | Permanent Link | Comments (2) |

Sunnudagur 22 Oct 2006

Flakkararnir komnir heim

Jæja gott fólk, þá erum við komin heim eftir mjög skemmtilega og fróðlega ferð. Það er verið að fara í gegnum nokkur hundruð myndir sem voru teknar síðustu 12 daga, ég ætla að setja eitthvað af myndum inn í net-albúmið mitt á næstu dögum. Við sáum marga áhugaverða staði sem verður best lýst með myndum. Ef einhver hefur gaman af að skoða vegakort eða finna fróðleik á netinu um þá staði sem við heimsóttum, set ég hérna inn nöfnin á stöðum sem við gistum á. Fyrst var það Portel í Portugal, næsta dag vorum við komin til Spánar í bæ sem heitir Zafra, þá Torredelcampo, Ubeda, Garucha við Miðjarðarhafið, svo vorum við þrjár nætur hjá vinum okkar sem búa nálægt Torrevieja, Alfafar sem er úthvarfi í Valencia og síðustu nótt gistum við í Ávila sem er skammt vestan við Madrid og keyrðum þaðan heim til okkar í dag. Það er frá svo mörgu að segja að erfitt er að vita hvar skal byrja en ég ætla að setja inn eina mynd núna og hún er af Palla þar sem hann er á gangi í sædýrasafni í Valencia. Nú er kominn tími til að fara að leggja sig eftir þetta mikla ævintýri.

Posted by Þórunn at 22:06:36 | Permanent Link | Comments (3) |

Mánudagur 16 Oct 2006

Kveðja frá ferðalöngum

Ég þakka kærlega allar góðar óskir og kveðjur, þetta verður bara stutt núna til að láta vita að allt gengur vel. Ferðin er búin að vera mjög skemmtileg og fróðleg, við erum búin að keyra um fjöll og dali, skoða stíflur, kirkjur, klaustur og svo gömul þorp að það þurfti að leggja speglana upp að bílnum til að komast eftir götunum. Við komumst niður að Miðjarðarhafinu í gær. Gistum í strandbæ sem heitir Garrucha, skammt fyrir sunnan Cartagena. Það var notalegt að ganga á ströndinni í gærkvöldi og sofna svo við öldugjálfrið því við fengum inni á hóteli nánast í flæðamálinu. Svo keyrðum við til vina okkar sem búa rétt hjá Torrevieja, ef einhver kvartar yfir hringtorgunum í Mosfellsbæ þá ætti hann að prófa að keyra í Torrevieja. Það er ekki hægt annað en að hrósa Toyotunni og leiðsögutækinu, þetta eru alveg stórkostlegar græjur sem við erum með. Það er búið að taka einhver ósköp af myndum en þær verða að bíða þar til við komum heim. Við förum trúlega af stað til Valéncia á miðvikudaginn og tökum svo stefnuna vestur yfir skagann og gerum ráð fyrir að koma heima um eða eftir næstu helgi. Palli biður að heilsa.

Posted by Þórunn at 18:35:55 | Permanent Link | Comments (6) |

Miðvikudagur 11 Oct 2006

Ég fer í fríið, ég fer í fríið....

Sjáumst aftur eftir viku eða 10 daga. Hafið þið það gott og verið góð við hvert annað.
Posted by Þórunn at 08:14:19 | Permanent Link | Comments (7) |

Mánudagur 09 Oct 2006

Haustlitir

Hann Palli í Stóradal er svo duglegur að segja frá ferðalögum okkar síðustu daga að ég læt nægja að segja frá gróðrinum núna. Haustlitirnir í garðinum í Austurkoti eru lítið líkir haustlitunum sem sjást í görðum á Íslandi þessa dagana. Gróðurinn hefur tekið mikinn kipp eftir að það tók að rigna og svo hefur líka verið hlýtt, eða yfir +20° á daginn. Fyrst er mynd af rósabeðinu sem er alveg ótrúlega fallegt miðað við árstíma

og svo er mynd af plöntu sem kallast Englatrompet, en þessi planta fölnar alveg niður í rót á veturna en vex upp aftur og aftur, hún blómstrr í seinna lagi núna, líklega vegna þurrka og hita í sumar.

Ég má til með að hrósa Toyota umboðinu á Íslandi, ég skrifaði þeim um daginn og spurði hvort það væri nokkur leið að fá sendan bækling um Toyota Prius, það tekur tvo mánuði að fá bækling á ensku, frá umboðinu hérna. Pósturinn kom í dag með bækling á íslensku frá Toyota á Íslandi. Mikið er gott til þess að vita að það eru til fyrirtæki sem kunna að þjóna sínum viðskiptavinum, jafnvel þó við séum ekki viðskiptavinir þeirra. 

Hrós dagsins fær Ásmundur Edvaldsson ráðgjafi söludeildar hjá Toyota.

Hér kemur ekta haustmynd af eðalvagninum undir fallegum trjám í Albergaria

Posted by Þórunn at 21:06:50 | Permanent Link | Comments (2) |

Fimmtudagur 05 Oct 2006

Maður með geislabaug

Það er ekki oft sem næst mynd af geislabaugnum sem sumir menn hafa um höfuðið. En þegar Palli var að mynda kóngulóarvef í morgun, náði ég þessari mynd

Seinna í dag náði ég svo mynd af snillingnum sem óf þennan vef

Posted by Þórunn at 22:25:12 | Permanent Link | Comments (6) |

Sunnudagur 01 Oct 2006

Sultugerð

Það er öruggt merki um að haustið sé komið þegar ég fer að búa til sultu. Helgin hefur farið að mestu í að hræra í pottinum og koma afrakstrinum í krukkur. Líklega eru þetta um 14 kíló af sultu sem eru komin inn í búr, mér finnst það góð tilfinning.

Þegar ég var búin að ganga frá eftir mig í dag skruppum við í bíltúr og fengum okkur kaffi í bæ sem heitir Ilhavo, en hann er vinabær Grindavíkur. Þar gengum við um götur og könnuðum miðbæinn betur en við höfum gert áður, auðvitað rakst ég á gosbrunn á hringtorgi og hér fáið þið að sjá hann.

Mörgum kann að þykja það undarlegt að ég hef sérstakt dálæti á hringtorgum. Það hefur oft forðað mér frá því að villast, að keyra nokkra hringi í hringtorgum. Ekki síst þegar við erum að ferðast á ókunnum slóðum og það er mikilvægt að lesa á skilti og finna réttu leiðina þangað sem ferðinni er heitið. Palli man nöfnin á stöðunum sem við ætlum að heimsækja en hann sér ekki lengur til að lesa á skiltin svo að ég verða að gera það. Oft er sagt um konur að þær eigi erfitt með að gera tvent í einu, og ég játa það alveg að ég á erfitt með að lesa á skilti um leið og ég stjórna bílnum og hef auga með umferðinni í kringum mig. Þess vegna er ég svo hrifin af hringtorgum, það er svo auðvelt að taka annan hring ef ekki tekst að finna rétta nafnið í fyrstu tilraun.

Posted by Þórunn at 21:44:20 | Permanent Link | Comments (8) |