Sunday, December 30, 2007

Nú líður að lokum

ársins 2007, það hefur verið viðburðarríkt eins og önnur ár og ætla ég ekki að rekja

þá viðburði aftur, þeir hafa verið tíundaðir meira og minna hér á síðunni. 
Ég ætla að setja hér inn mynd sem ég tók í desember 2006, hún er tekin við verslunarmiðstöðina Forum í Aveiro. Þar sjáumst við Palli speglast í jólakúlu á stóru jólatré, mér finnst myndin skemmtileg og tek hana sem tákn um bjarta framtíð hjá okkur.



Með þessum fátæklega pistli vil ég óska öllum lesendum mínum gleði og gæfu á komandi ári 2008, og þakka fyrir allar góðar stundir og góð skrif. Sjáumst hress á nýju ári.
Posted by Þórunn at 11:03:16 | Permalink | Comments (7)

Wednesday, December 26, 2007

Græn jól

Það er venja að tala um hvít eða rauð jól á Íslandi, nú eru hvít jól þar en hér ætti ef til vill betur 

við að segja græn jól, því jörðin er frekar græn en rauð. Við vorum ánægð þegar byrjaði að rigna 
í gær því hér vantar virkilega vatn, brunnurinn er að tæmast, eins og árnar hér í kring. Svona er vatninu nú misskipt á þessari jörð. En ég ætlaði nú að tala um mat, eins og mikið er gert þessa dagana. Við áttum gott aðfangadagskvöld með Matild og Manuel, borðuðum soðinn saltfisk ásamt soðnu káli og kartöflum, svo voru dregnar fram nokkrar tegundir af eftirréttum eins og tíðkast hér um slóðir. Svo fórum við í annað matarboð í gærkvöldi og ekki var minna borðað þar. Fyrst voru þrjár tegundir af ofnsteiktu kjöti með kartöflum og hrísgrjónum, húsráðendur linntu ekki látum fyrr en við höfðum fengið okkur eftur á diskinn, sem við hefðum betur látið ógert því það áttu eftir að koma amk. 10 tegundir af eftirréttum á borðið. Þetta er ekki misritun það er hægt að sjá hluta af þessu á myndinni hér fyrir neðan þar sem Palli ræðir einhver alvarleg mál við aðra heimasætuna á meðan hin sækir meira fram í eldhús, það endaði með því að borðið var svo hlaðið að það var ekki hægt að koma einni undirskál í viðbót.
Það er ekki ofsögum sagt að við hefðum ekki komið niður bita í viðbót enda höfum við lifað á léttu fæði í dag. 



Posted by Þórunn at 22:17:55 | Permalink | Comments (5)

Sunday, December 23, 2007

Bloggið fullnýtt

Eins og þið hafið líklega orðið vör við hefur bloggið mitt verið hálf-lamað í nokkra daga, líklega af því að ég hef sett of stórar myndir inn. Einhver vandræði með að læra á nýja eplið mitt. En nú er vandinn leystur, ég borgaði svolítið aukalega til að virkja svæðið aftur, ekki vil ég vera með lamað blogg um hátíðarnar.


Svo nú get ég sagt við ykkur kæru lesendur


Gleðilega hátíð og eigið góðar stundir hvert með öðru.

Posted by Þórunn at 17:51:26 | Permalink | Comments (5)

Monday, December 17, 2007

Tilraun með mynd

Ég hef verið að keppast við að læra á nýjasta leikfangið mitt og vona að ég sé nú 

búin að finna leiðina til að setja inn mynd á heimasíðuna án þess að hún sé risastór. 

Þessa mynd tók ég fyrir klukkan níu í morgun, en þá var frostið -4° þarna sjáum 
við lifandi fyrirmynd þess, þegar sprautað er hvítu dufti á greinar 
til að gera þær jólalegar.

Posted by Þórunn at 19:45:20 | Permalink | Comments (3)

Sunday, December 16, 2007

Ætli ég hafi verið óvenju þæg í desember?

Eftir því sem ég les á heimasíðum margra foreldra á keppast börnin við að vera þæg og hjálpsöm við foreldra sína til að eiga meiri von um að jólasveinninn láti eitthvað spennandi í skóinn. Ég held að ég hafi ekki lagt mig neitt sérstaklega fram um að vera “þæg og góð” það sem af er mánuðinum en samt sem áður fékk ég frábæra gjöf einn daginn. Já draumur minn rættist um að eignast EPLIÐ eina og sanna og það ekkert smáepli, iMac heitir þetta epli og er frábært tæki með 24″ skjá sem gefur kristaltærar myndir og góða vinnuaðstöðu. Ég er auðvitað á byrjunar reit, það tekur sinn tíma að læra á þetta undur en tilfinningin hjá mér er sú sama og þegar ég fór að keyra Toyota Prius eftir að hafa verið á Opel Meriva. Þetta leikur allt í höndum manns. En samt sem áður er ég ekki búin að læra að minnka myndir til að setja á þessa heimasíðu, þess vegna er myndin af húsinu hans Manuels allt of stór. Þetta getur orðið til þess að ég skipti um heimasíðu fljótlega því mér líst svo vel á heimasíðuna sem Macintosh býður uppá. Mér tekst ekki að setja inn myndir eins og en held áfram að læra á nýja gripinn. Það á að vera hægt að komast inná nýja albumið hérna http://gallery.mac.com/austurkot/100014


Posted by Þórunn at 18:13:26 | Permalink | Comments (3)

Friday, December 14, 2007

Ljós á dimmum kvöldum

Það er nóg að gera í litla dalnum okkar, nú eru menn sem óðast að koma fyrir ljósaseríum og lífgar það sannarlega upp á þessi dimmu kvöld sem eru núna.
Manuel granni okkar hefur ekki látið sitt eftir liggja og nú er það húsið hanns sem ber af öllum í hverfinu.
Það hefur ekki verið svona kalt hérna svo lengi sem við munum, það er frost á hverri nóttu og það liggur héla yfir öllu þegar við vöknum á morgnana,
það kalla innfæddir snjó en við köllum þetta hélu eða hrím sem hverfur um leið og sólin kemur upp um kl: níu á morgnana.

Svona lítur húsið hans Manuels út þessa stundina.

8/1″2008  ég tók út myndina af húsinu hanns  Manuels, hún var svo stór og mér fannst hún stufla uppsetninguna á blogginu.

Posted by Þórunn at 22:24:14 | Permalink | Comments (2)

Thursday, December 6, 2007

Kortagerð

Á meðan ég var á Íslandi var ég að hugsa um hvað ég hefði viljað nota tímann til að búa til jólakortin sem ég er vön að senda vinum og vandamönnum, en ég vissi að ég ætti nóg efni og tæki og tól heima í Austurkoti svo ég var farin að missa vonina um að mér tækist að búa til kortin á þeim stutta tíma sem eftir var. En svo fór ég að skoða í gullakassann minn og áður en ég vissi af var ég búin að gera 60 kort og ég var að loka síðasta umslaginu rétt í þessu. Ég verð að játa að ég lagði ekki eins mikla vinnu í kortin núna eins og á síðast ári, enda tíminn naumur. Kæru vinir og vandamenn þið verðið að taka viljann fyrir verkið, ég set hérna inn mynd af hluta kortanna síðan í fyrra en afrakstur þessa árs fær hver og einn að sjá þegar hann opnar kortið sitt.

 

Posted by Þórunn at 17:27:56 | Permalink | Comments (7)

Sunday, December 2, 2007

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Mér finnst viðeigandi að setja hér inn fróðleik um aðventukransinn.

_ Orðið aðventa er dregið af latnesku orðunum Adventus
Domini, sem þýða „koma Drottins“, og hefst hún á 4.
sunnudegi fyrir jóladag.  Aðventukransinn byggist á
norður-evrópskri hefð. Hið sígræna
greni táknar lífið sem er í Kristi og hringurinn táknar
eilífðina.
_ Fyrsta kertið nefnist spádómakerti og minnir á fyrirheit
spámanna Gamla testamentisins er höfðu sagt frá
komu frelsarans.
_ Annað kertið nefnist Betlehemskertið.
Þar er athyglinni beint að þorpinu sem Jesú
fæddist í og þar sem ekkert rúm var fyrir hann.
_ Þriðja kertið nefnist hirðakertið en snauðum og ómenntuðum
fjárhirðum voru sögð tíðindin góðu á undan öllum öðrum.
_ Fjórða kertið nefnist síðan englakertið og minnir okkur á
þá sem báru mannheimi fregnirnar.
_ Aðventukransinn, sem talinn er vera upprunninn í Þýskalandi á fyrri hluta 19.
aldar, barst til Suður-Jótlands og varð algengur í Danmörku eftir 1940. Frá Danmörku barst þessi siður til Íslands. Í fyrstu var aðventukransinn aðallega notaður til að skreyta búðarglugga en á milli 1960 og 1970 fór hann að tíðkast á íslenskum heimilum og er nú orðinn ómissandi hluti þessarar árstíðar.

 

Heimild: Vísindavefurinn.

Posted by Þórunn at 17:44:07 | Permalink | Comments (3)