Húsið á hæðinni
Finnst ykkur ekki bjart yfir þessu húsi? Sólin er á því allan daginn, ekkert sem skyggir á og útsýnið fallegt yfir dalinn, tók þessa mynd í fyrrasumar frá svipuðum slóðum.
Svo er það eldhúsið, hjarta heimilisins það er alveg dæmigert portúgalskt eldhús, nóg af skápum og þarna sést fram á ganginn sem er líka með dæmigert portúgalskt útlit, flísar upp á miðja veggi mjög þægilegt að þrífa þær.
Og svo sjáið þið Palla dást að útsýninu og til vinstri er auðvitað arinn, það eru fá eldhús í Portúgal án arins.
Það kom tvennt að skoða hjá okkur í dag en báðum fannst við setja of mikið á húsið 9 mill. kr. og vildu að við færum niður í 7,1/2 mill. það fannst okkur of mikil lækkun en sögðumst vera til í að ræða málin. Það er erfitt að meta verðgildi eigin eigna, “hverjum þykir sinn fugl fagur” og allir vilja fá sem mest fyrir sitt hús en fá hús annarra fyrir lítinn pening. Við verðum að reyna að setja okkur betur inn í hugsunarhátt innfæddra og skilja þeirra viðhorf. Það má vera að þetta hafi verið leikaraskapur til þess gerður að fá okkur til að lækka verðið. Við eigum líka eftir að fara af stað og prútta við húseigandann á hæðinni en við ætlum ekki að sýna of mikinn áhuga, þetta er allt eitt stórt leikrit. En okkur liggur ekkert á þetta verður líklega framhaldsleikrit.