Gestur og vorverk
Það hefur verið nóg að gera í vorverkunum í garðinum, kominn tími til að hreinsa sölnuð blöð og annað úr blómabeðum til að geta komið nýjum blómum fyrir og gefa nýjum sprotum pláss til að breiða úr sér. Veðrið var svo gott í gær að við töldum ástæðu til að fara í gróðrarstöð og kanna úrvalið af sumarblómum, það brást ekki nóg var úrvalið og þar fengum við líka fallegar tómt og paprikuplöntur sem við settum niður eftir að Palli var búinn að róta til jarðveginum, setja lífrænan áburð samanvið og búa svo til holur fyrir plönturnar, því vatnið nýtist betur ef plantan stendur í holu. Þegar plönturnar voru komnar niður setti ég heimatilbúin gróðurhús yfir hverja plöntu, en þau eru gerð úr fimm lítra vatnsflöskum sem ég sker botninn úr tek tappan af og hvolfi þessu yfir plönturnar svo sting ég priki niður í hvert gróðurhús til að varna því að það fjúki í burtu en plönturnar þurfa líka að hafa stuðning þegar þær stækka, svona lítur þetta út. Ef vel er að gáð má sjá lauk, rófur og púrrulauk lengra í burtu.
