Wednesday, April 23, 2008

Vorverkin

Það er nóg að gera við vorverkin í garðinum eins og Palli sagði frá, en hann gat auðvitað ekki sagt alla söguna í sínum myndum, ég tók mynd af honum þegar hann var kominn hátt upp í tréð og var að ljúka við að saga greinarnar sem hann vildi fjarlægja, það er erfitt að trúa því að hann sé alvarlega sjónskertur, en Manuel nágranni okkar stóð utan við vegginn og var tilbúinn að hjálpa ef með þyrfti.

Eins og við höfum sagt frá hefur rignt hressilega undanfarna daga og erum við bara ánægð með það, eins er með gróðurinn það er allt orðið svo fallega grænt og rósirnar eru byrjaðar að blómstra. Það hefur að sjálfsögðu vaxið í ánni sem rennur hér um dalinn og set ég hérna tvær myndir teknar af sama stað, önnur er tekin áður en byrjað var að lagfæra skemmdirnar á brúnni en hina tók ég í dag. Þar sést bæði munur á vatnsmagni og hvað vel tókst til með viðgerðina á brúnni, hún er eins og ný.

Svo óska ég öllum gestum mínum gleðilegs sumars.

Posted by Þórunn at 22:32:06 | Permalink | Comments (4)

Wednesday, April 16, 2008

Fátt er svo með öllu illt…

Ég sagði hérna frá mistökum mínum í gær, þar sem ég sendi óvart boðsbréf á öll netföng sem eru í tölvunni minni. Ég sendi svo afsökunarbeiðni í morgun á þau netföng sem ég var ekki búin að henda út, en ég tók rækilega til í netfangabókinni minni í gærkvöldi. En þessi mistök mín urðu til þess að ég er búin að fá nokkur bréf í dag frá fólki sem eg hef ekki heyrt frá lengi, eins er með Palla því hann gerði þessi sömu mistök, þess vegna segi ég að fátt sé svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott.
Svo ég snúi mér að öðru, þá tók ég myndir í dag af kettinum sem heldur að hann eigi heima hérna, mikið hlýtur að vera gott að vera svona afslappaður og áhyggjulaus.

Hann liggur oft á brunnlokinu



En í dag hafði hann komið sér fyrir í tómum blómapotti sem ég ætlaði að fara að þrífa.

Posted by Þórunn at 21:44:19 | Permalink | Comments (4)

Tuesday, April 15, 2008

Skýjaglópur

Nú get ég með sanni kallað mig skýjaglóp, ekki nóg með það að ég hafi gaman af að taka myndir upp í himininn, heldur get ég líka verið dálítið fljóthuga stundum. Ég fékk send boð áðan í netpósti um að taka þátt í netfélagi sem heitir Tagget og var búin að skrá mig inná þetta áður en ég hugsaði, og hvaða afleiðingar hafði það? Ég var víst búin að bjóða öllum sem ég hef einhvertíma haft samband við í netpósti, að taka þátt í þessu. Nú ætla ég bara að biðjast afsökunar á að hafa sent þetta bréf, ég er búin að skrá mig út úr þessum félagsskap enda tel ég mig ekkert hafa þar að gera. Verst þykir mér að hafa sent boð til starfsmanna ýmissa fyrirtækja sem ég hef þurft að hafa samband við, og eins til fólks sem ég hef ekki haft samband við lengi og það hefur ekki haft samband við mig. Ég bið ykkur sem lesið þetta og fenguð póstinn frá mér að segja bara að segja nei við þessu boði. Þeir sem vilja skrifa mér, gera það áfram með venjulegum netpósti.
Og nú fer ég bara og halla mér, og býð ykkur góða nótt.

Posted by Þórunn at 21:35:04 | Permalink | Comments (2)

Wednesday, April 9, 2008

Mér finnst rigningin góð

Það kom ekki á óvart þegar byrjaði að þykkna í lofti sem endaði svo með rigningu. Við erum ánægð með rigninguna núna, ekki veitti af fyrir gróðurinn og brunninn. Við horfðum á fréttir áðan og sáum að það gekk mjög slæmt veður yfir mið Portúgal í morgun, vindhraðinn var 200 km. á klukkustund. Í einum bæ voru fjórar verksmiðjur í rúst, 12 hús mjög mikið skemmd og einhverjir voru slasaðir. Þetta var virkilega ljótt að sjá og merkilegt hvernig svona slæmt veður getur gengið yfir á takmörkuðu svæði, það var talað um 15 km breitt  belti. 
Ég tók myndir út um stofugluggann einn sólardaginn, tók mynd á klukkutíma fresti frá kl átta um morguninn til sólarlags rúmlega átta um kvöldið. Þessar myndir eru í Picasa albúminu mínu sem hægt er að sjá hér til hliðar, svo tók ég eina mynd í dag til að sýna hvernig sami garður lýtur út í rigningu.

Posted by Þórunn at 21:47:10 | Permalink | Comments (4)

Friday, April 4, 2008

Forsmekkur af sumri

Þetta er þriðji dagurinn sem hitinn fer í +30° hér í dalnum. Í svona veðri er engin leið að vinna neitt úti, heldur finna sér eitthvað annað til dundurs. Til dæmis að fara niður á strönd en það gerðum við í gær. Það er aðeins svalara niðri á strönd og alveg ágætt að fá sér góðan göngutúr þar. Það er hægt að velja um að ganga fleiri kílómetra eftir viðarklæddum göngustíg

eða ganga eftir brimbrjót sem er um einn km. á lengd, hann var gerður til að bæta innsiglinguna í höfnina í Aveiro, þessi mynd er tekin í áttina að vitanum sem er á endanum á brimbrjótnum. Við gengum út að vitanum eins og oft áður, það er mjög hressandi

þessi mynd er tekin í fyrrasumar en hún sýnir vitann og göngubrautina frá honum

Maður verður að passa sig að láta ekki blekkjast af þessum góðu dögum því enn er of snemmt að halda að sumarið sé komið. En um að gera að njóta blíðunnar eins og hægt er.

Posted by Þórunn at 15:45:26 | Permalink | Comments (5)

Wednesday, April 2, 2008

Góðir dagar

Tveir síðustu dagar hafa verið eins og bestu sumardagar, fallegt veður og hlýtt. Hitinn fór upp undir +30° í dag og þá langar mann bara að vera úti og njóta blíðunnar. Við hjóluðum í gær eftir langt hlé og vorum furðu spræk, það er ólýsanlegt hvað það gefur mikið að hjóla í svona góðu veðri og vera í þessu umhverfi sem er hér í kring. Mjög fáir bílar á þessum sveitavegum, svo öll skilningarvit geta notið sín. Það heyrist lækjarniður og fuglasöngur, maður finnur ilminn af trjám og öðrum gróðri sem er að taka við sér og svo er margt sem fyrir augun ber. Nýplægðir akrar sem fólk er að vinna á, konur að þvo þvott í þvottalug við veginn og ein kona á gangi, hún hefur brotið saman peysuna sína og sett á höfuðið á sér til að verjast sólinni. Svona er lífið upp til sveita í Portúgal í dag.
Ég tók enga mynd í þessari ferð er gat ekki staðist að setja inn mynd af einu blómi enn úr garðinum í Austurkoti, það er tími fyrir Íris að blómstra núna



Svo fáið þið gátu að glíma við, af hvaða plöntu er þetta sem þið sjáið hér?

Posted by Þórunn at 22:45:16 | Permalink | Comments (5)