Tuesday, July 29, 2008

Kisi braggast

Er ekki kominn tími á að segja fréttir af nýja heimiliskettinum? Eftir nokkrar vangaveltur höfum við ákveðið að hann skuli heita Prins, fyrst fannst okkur liggja beinast við að kalla hann Skugga, hann er svo dökkur að það er jafnvel erfitt að ná góðum myndum af honum og það er líka mjög erfitt fyrir Palla að sjá hann þegar hann liggur á svartri mottu sem er við dyrnar hjá okkur. En þegar við fórum að kynnast honum betur fundum við út að hann er enginn venjulegur köttur, hann hefur mjög ákveðinn matarsmekk, vill fá mikla athygli og vill helst liggja í fangi manns og fá endalausar strokur. Það er enginn vafi að hann kemur frá heimili þar sem hefur verið dekrað við hann, hvernig sem stendur á því að hann viltist í burtu. Ég sé eftir að hafa ekki viktað hann strax til að sjá hvað hann verður fljótur að ná holdum. Ég viktaði hann í gær og reyndist hann vera 2100 gr. eftir rúmar tvær vikur í Austurkoti. Ég set hér inn mynd sem var tekin daginn sem hann fékk baðið hjá Stellu vinkonu minni, ég held að það sjáist bara í beinin í honum og hann er óttalega vesældarlegur

Það er heilmikill munur á honum á þesari mynd sem ég tók í gær, feldurinn orðinn fallegri og eitthvað hold komið á beinin. Svo eru sárin sem voru á höfðinu á honum gróin, ég setti Aloa Vera á þau á hverjum degi

Þetta er Prins í Austurkoti

Posted by Þórunn at 09:29:04 | Permalink | Comments (3)

Wednesday, July 23, 2008

Physalis

Ég þakka Danna og Gunn fyrir að benda mér á nafnið á blóminu sem ég spurði um, ég fór út á netið og fann þar myndir, þar var sagt að þessi planta gæti orðið 150 cm. há, en hjá mér er hún komin yfir 200 cm. Það eru til margar tegundir af þessari ætt með margskonar litum blómum og oft gefur það ávöxt. Ég opnaði einn belginn og þá komu í ljós tvær litlar baunir sem ég veit ekki hvort verða að fræjum eða ávöxtum, það kemur í ljós með haustinu



Þessi planta vex líka í garðinum í Austurkoti og telst til sömu ættar, hún er einmitt kölluð “Japönsk lukt”



Posted by Þórunn at 11:02:53 | Permalink | No Comments »

Monday, July 21, 2008

Gróðursæld

Þegar ég horfði á blómin við vegginn á veröndinni datt mér í hug að það eru ekki nema 10 vikur síðan útliti var svona, gróðurinn er ekki lengi að taka við sér, fyrata myndin er tekin 12. maí 2008

Næsta mynd er tekin í dag, 21. júlí 2008, blómin við veggin hafa öll vaxið af fræjum sem ég sáði í vor



Getur einhver sagt mér hvaða blóm þetta er? Það var góð kona sem býr “á bak við fjöllin” sem gaf mér þessi fræ í fyrra þegar við heimsóttum hana ásamt Alcine og José, það ber smá hvít blóm og svo myndar það þessa belgi sem eru eins og þeir væru gerðir úr örþunnum pappír

Posted by Þórunn at 14:19:04 | Permalink | Comments (1) »

Saturday, July 19, 2008

Hver vill gerast liðsmaður Elísabetar?

Ég er búin að skrifast á og spjalla við Elísabet á netinu í nokkur ár. Þekkti hana ekkert áður. Hún auglýsti eftir liðveislu á bloggsíðunni sinni um daginn og einn lesandi síðunnar tók sig til og setti þessa auglýsingu á sína síðu. Þar biður hún sem flesta að birta auglýsinguna ef það mætti verða til þess að Elísabet fái þá liðveislu sem hún á rétt á að hafa sem fatlaður einstaklingur. Hér með kem ég þessu á framfæri og vona að þetta fari að bera árangur.

Hjálp bloggvinir / Ert þú til í að birta þetta á þinni síðu?

Elísabet Sigmarsdóttir er fædd með sjaldgæfan sjúkdóm sem kallast Encephalocele. Hún er sú eina á landinu semhefur lifað hann af hingað til. Afleiðingar hans eru ýmsar. Henni fer stöðugt aftur og er í dag í hjólastól. Elísabet er búin að fara í u.þ.b. 60 aðgerðir. Oft var henni ekki hugað líf en er í dag lífsglöð og bjartsýn ung kona þrátt fyrir alla þá þröskulda sem lífið hefur sett henni.

Elísabet leitar nú eftir stuðningsmanneskju eða liðsveislu, eins og það er kallað. Liðsmaður er hugsaður sem félagslegur stuðningur og er um 16 tíma á mánuði að ræða. Er það samkomulagsatriði á milli Elísabetar og þess sem stuðninginn veitir hvernig þessum tíma er varið og hvenær. 

Það er í raun Reykjavíkurborg sem á að útvega stuðningsmanneskju en þeim hefur ekki tekist það og hefur Elísabet verið án þessarar þjónustu í 7 mánuði.  Engin vilji er þar á bæ til að ganga lengra til að bjarga málunum. Þetta fellur ekki undir forgangsröð borgaryfirvalda. Það vitum við öll.  Þetta skiptir hinsvegar öllu máli fyrir tilveru Elísabetar Sigmarsdóttur.

Viðkomandi hlýtur laun fyrir en samt óskum við eftir manneskju sem hefur áhuga á því að láta gott af sér leiða og gefa nærveru sína og félagsskap til þessarar fallegur og hugrökku vinkonu minnar.

Ef þú hefur tök á því og tíma, gerðu þá góðverk. Ef þú hefur verið að hugsa í mörg ár að þú ættir kannski að gefa eitthvað til baka þá er núna tækifærið.

Síminn hjá Elísabetu er: 587 - 6278 og netfangið: liso@internet.is

Ég hér bið ykkur öll um að birta þetta á ykkar síðu sem færslu ef þið sjáið ykkur það fært.

Og svo er bara líka “nice” að senda henni kveðju: Elísabet.

Posted by Þórunn at 14:04:48 | Permalink | No Comments »

Friday, July 18, 2008

Stutt ferð

Þá erum við komin heim úr stuttu ferðalagi suður á bóginn. Fórum meðfram strandlengjunni nánast til Lissabon. Stoppuðum fyrst í strandbænum Nazaré, þar var mikið af fólki á ströndinni en það er í fyrsta skipti sem ég sé fólk í sólbaði í þoku. Já það læddist inn þoka frá sjónum en hún leystist fljótt upp svo það sá til sólar annað slagið. Við gengum fyrst um göngustíg meðfram ströndinni og horfðum á mannlífið en keyrðum svo upp á höfða sem gnæfir yfir ströndina og þá var útsýnið svona

hérna sést betur hvernig þokan kemur inn frá sjónum, en þetta var engin kuldaþoka heldur var hitinn um -30°

Það var líka þoka við ströndina í Peniche þegar við komum þangað seinnipartinn á miðvikudaginn, við máttum til að ganga út á  vestasta tanga Portúgal sem heitir Cabo Carvoeiro, hann er úr sérkennilegri steintegund sem kallast víst kalksteinn sem er mjög mjúkur svo sjórinn hefur sorfið hann mikið til í aldanna rás.
Þarna sést Palli í ganga út á klettana í þessari sérkennilegu birtu sem verður þegar þoka og sól mætast.

Hér sést hvernig klettarnir eru sorfnir til

Posted by Þórunn at 21:58:36 | Permalink | Comments (1) »

Saturday, July 12, 2008

Gestirnir farnir, nýr heimilisvinur

Vikan sem gestirnir dvöldu hér var fljót að líða, þeir kvöddu á miðvikudaginn og vara húsið frekar tómlegt á eftir. En á meðan gestirnir voru hjá okkur, kom vesældarlegur köttur að hliðinu og mjálmaði ámátlega og sagðist vera svangur. Hann var mjög horaður og feldurinn óhreinn og tættur eins og hann hefði lent í áflogum. Við gátum ekki annað en reynt að gefa honum eitthvað að borða, áttum þurrmat síðan síðasti köttur var hér svo við þóttumst góð, en það var sama hvað þessi var svangur, hann leit ekki við korninu heldur hélt áfram að væla. Þá prófaði ég að gefa honum skinku álegg, það gat hann vel borðað ásamt nokkrum rækjum sem voru til. Við tókum eftir að hann lifnaði allur við þegar bjórdós var opnuð, eins og hann þekkti hljóðið svo við fórum og keyptum nokkrar dósir af kattamat, þann mat borðaði hann með góðri lyst.
Það kom strax í ljós að þetta hefur örugglega verið heimilisköttur sem hefur fengið gott atlæti því hann sækist eftir að láta strjúka sér og vill helst vera í kjöltu manns þegar við sitjum úti. Stella vinkona mín sagði að það yrði að baða hann svo við gætum komið nálægt honum, hún setti upp þykka rósahanska og baðaði köttinn án erfiðleika þó hann mótmælti hástöfum. Hérna er hún að þurrka hann eftir baðið og virtist hann kunna því vel að láta dekra við sig á eftir.

Við gáðum ekki að okkur eitt kvöldið þegar við höfðum dyrnar opnar út til að fá kvöldsvalann inn, þá hafði kötturinn laumað sér inn í myrkrinu og lét fara lítið fyrir sér um nóttina en svo þegar Palli fór inn á bað um morguninn kom kisi á móti honum eins og ekkert væri sjálfsagðara. En við höfum ekki hugsað okkur að hafa hann inni, hér er alveg nógu gott veður allt árið til að kettir geti verið úti allan sólarhringinn. Ég hef lítið umgengist ketti en ég held samt að þessi sé sérlega vel gerður, hann er mjög blíður og góður og svo er kostulegt að sjá hann velja matinn af diskinum sínum, við ætluðum að reyna að plata ofan í hann þurrmatinn og hrærðum honum saman við maukið úr dósinni en hann sá við því, sleikti maukið af kornunum og lét þau detta út úr sér, ef hann fékk þau upp í sig og svo sá ég hann færa kornin til með loppunni svo hann gæti sleikt upp það sem honum finnst gott og hann á það líka til að taka mat með loppunni og stinga upp í sig, þetta er alveg ótrúlegt.
Hér kemur svo mynd af þessum dekurketti þar sem hann liggur á gömlum bol sem ég hef á hnjánum þegar ég sit með hann (hann fer svo mikið úr hárum) ég stóð upp og lagði hann á stéttina í bolnum og þar lá hann næsta hálftímann.


Ætli dagbókin mín verði full af kattarsögum hér eftir?

Posted by Þórunn at 22:34:56 | Permalink | Comments (2)

Monday, July 7, 2008

Afsakið biðina

Gott fólk, það er gott að heyra að flestir virðast nú sjá allan textann sem ég skrifa, það væri mikill skaði ef þið gætuð ekki séð hann allan, ha, ha. Afsakið biðina eftir þessari færslu, en við höfum varið öllum tímanum frá síðasta miðvikudegi með góðum gestum, Stellu og Eiði. Tíminn er fljótur að líða þegar maður er með skemmtilegu fólki og heimsókn þeirra er senn á enda. Við fórum með þeim í dag til háskólaborgarinnar Coimbra og þaðan til Conimbriga þar sem hafa verið grafnar upp fornminjar sem taldar eru vera frá því um 450. Það var gaman að koma á báða þessa staði og svo enduðum við í Figueira da Foz sem er vinsæll ferðamannastaður með fínum baðströndum, smábátahöfn og mörgum Hótelum.
Ég set hérna með mynd sem má víst teljast dæmigerð, maðurinn bíður þolinmóður á meðan konar kannar vöruúrvalið í einni búðinni. Þetta eru Stella og Eiður í Coimbra.

Og svo er mynd af einu gólfinu í rústunum, frá tímum Rómverja. Munstrið er gert úr mislitum smásteinum sem eru ekki stærri en nögl á litlafingri.

Posted by Þórunn at 22:22:07 | Permalink | Comments (1) »