Þar sem við erum ekki bundin af því að mæta til vinnu á virkum dögum, förum við ekkert síður í stutt ferðalög í miðri viku en um helgar. Það gerðum við í gær, settum nafnið á bænum sem við vildum heimsækja í leiðsögutækið, með viðkomu á flugvellinu í Porto því við vildum kanna nýja leið þangað. Þegar við vorum komin að flugvellinum var haldið áfrm með leiðsögn tækisins og lá leiðin í gegnum mörg þorp og bæi eins og venjulega. Þegar við komum að einum bænum blast við svo falleg bygging og heillandi umhverfi að ég beygði út af þjóðveginum í áttina að þessu fallega húsi sem reyndist vera klaustur St. Clara sem stendur á hæð upp frá ánni og er mjög fallegt útsýni þaðan.
Að klaustrinu liggja vatnsleiðslur 26 km. leið og eru bogarnir 900 talsins

Það var svo margt að skoða þarna að við gáfum okkur góðan tíma og tókum margar myndir. Auðvitað voru gosbrunnar þarna en nú ætla ég að bregða út af vananum og setja inn myndir af styttum sem urðu á vegi mínum, þessi bær er þekktur fyrir fallega handavinnu og þá sérstaklega fyrir blúndugerð,
ég man ekki hvað þessi tegund af blúndugerð kallast en það sést á myndinni hvernig blúndan er ofin úr mörgum endum sem festir eru á kefli
Svo var þarna hafmeyja sem á líklega að vernda sjómenn frá háska

Það eru algjör forréttindi að ráða svona tíma sínum sjálfur og geta flakkað um landið og skoðað alla þá fallegu og áhugaverðu staði sem hér eru í kring. Ég tala nú ekki um hvað þetta er léttara eftir að leiðsögutækið kom til sögunnar og svo er hægt að lesa sér til á netinu um staðina sem heimsóttir hafa verið.