Sunday, September 28, 2008

Komin til Íslands

Ferðin gekk alveg ágætlega, gott veður í London og vel tekið á móti okkur í Keflavík. Við erum nú stödd hjá vinum okkar Siggu og Nonna en flytjum okkur á morgun á Meðalbrautina þar sem við munum búa á meðan á dvöl okkar stendur.
Við erum komin með símanúmer í farsímann það er 6963944.
Það verður nóg að gera hjá okkur fram eftir vikunni en svo munum við fara að hringja í þá sem hafa beðið okkur að hafa samband.
Bestu kveðjur frá Palla og mér.
Posted by Þórunn at 21:48:26 | Permalink | Comments (7)

Friday, September 26, 2008

Mamma mia

Þá er komið að því að slökkva á tölvunni í óákveðinn tíma. Þetta var góður dagur, sól og blíða eins og oftast. Við brugðum undir okkur betri fætinum og fórun á Bíó til að sjá Mamma mía, ég skemmti mér konunglega enda kom myndin á óvart, bæði sagan, leikararnir, söngurinn og dansinn. Þá er bara að kveðja í bili ég veit ekki hvenær ég kemst til að bæta einhverju hér inn, það verður vonandi fljótlega.
Takk fyrir allar kveðjurnar og megi ykkur líða sem best, þangað til næst verið þið sæl og blessuð.
Posted by Þórunn at 20:50:43 | Permalink | No Comments »

Wednesday, September 24, 2008

Ferðahugur

Það er kominn í okkur ferðahugur, við fljúgum til Íslands á laugardaginn 27. september. Það er verið að pakka í töskur og ákveða hvað skal taka með. Það er óráðið hvað við stoppum lengi það fer eftir því hvernig gengur með ákveðna hluti sem við þurfum að gera. Hérna er mynd af Palla síðast þegar við biðum átta tíma á Stansted, við þorum ekki að taka áhættuna að ná hádegisvélinni til Íslands það er svo stuttur tími frá því við lendum á Stansted þar til hádegisvélin fer. En nú eigum við bæði ipod svo þetta verður ekki lengi að líða svo er hægt að fá ég eitthvað að bíta í og rölta á milli búða og toga í tuskur. Heimasíminn hjá okkur frá mánudegi 29. sept. er 554 3494, farsímakort kaupum við í flugvélinni svo ég veit ekki númerið ennþá, set það hérna inn þegar það er komið á hreint. Vonandi sjáumst við sem flest, þangað til líði ykkur vel og verið góð hvert við annað.


Posted by Þórunn at 09:45:03 | Permalink | Comments (8)

Tuesday, September 23, 2008

Prins þakkar fyrir sig

Þegar ég kom út í morgun beið Prinsinn auðvitað á tröppunum, eftir að fá sinn morgunverð. Þegar mér varð litið niður á veröndina sá ég að Prins hafði komið með gjöf handa mér, þarna lá lítil mús greinilega steindauð en samt sáust engin merki um hvernig dauða hennar hafði borið að, Palli segir að mýs geti hreinlega dáið úr hræðslu ef þær sjá kött. Ekki skal ég neitt um það segja en svona var þetta, ég veit ekki hvort Prins fær sér eina og eina mús í ábót en hann hefur þyngst um 1100 gr. síðan ég viktaði hann stuttu eftir að hann settist hér að.

Það er greinilega mikið líf í kringum Austurkot, það er best að sýna ykkur mynd af fljúgandi gestum sem finnst gott að fá sér hunang úr blómunum.

Posted by Þórunn at 21:12:38 | Permalink | Comments (1) »

Monday, September 22, 2008

Góð helgi að baki

Við áttum óvenjulega og góða helgi, vinir okkar Jónína og Guðmundur sem eiga hús og land 100 km. fyrir sunnan okkur komu á laugardaginn og gistu eina nótt. Við höfum um nóg að spjalla svo laugardagurinn leið fljótt, við tókum þá ákvörðun að fara út að borða um kvöldið og völdum stað sem okkur finnst bæði notalegur og hafa góðan mat. Þau hafa ekki komið þangað áður og voru okkur sammála með staðinn. Það var spáð rigningu á sunnudaginn en þegar við vöknuðum var sól og logn. Það var ákveðið í snatri að skella sér í bíltúr á staði sem þau hafa ekki heimsótt en þau þekkja mann sem á sumarhús á þeim stað. Þetta stendur á sandrifi sem er umlukið Atlanshafinu á annan veginn en sýki sem sem sjórinn hefur myndað og er um 60 km langt. Þegar við vorum komin á þennan stað blasti við okkur höfnin í Aveiro á hinum bakka sýkisins, þarna ganga ferjur á milli með stuttu millibili en ferðin tekur þá 10-15 mín í stað þess að keyra 76 km landleiðina því það er svo langt bil á milli brúnna yfir sýkið. Veðrið var dálítið sérstakt þarna, óvenjuleg hitamóða gerði það að verkum að útsýnið varð eins og leikmynd í dularfullri kvikmynd. Það sést á myndinni sem ég tók, eða hvað finnst ykkur?

Svo keyrðum við til baka alla leið til Aveiro og niður á strönd sem heitir Barra, þegar vi komum þangað var mikið bjartara enda fólk í sólbaði og sullandi í sjónum og veiðimennirnir eru sjaldan langt undan

En svo sáum við hvar miklir skýjabólstrar komu upp á himininn svo okkur þótti vissara að drífa okkur heim og það passaði þegar við renndum upp að Austurkoti heyrðust fyrstu þrumurnar og regndropar byrjuðu að falla. Það gerði hið mesta þrumuveður sem ég hef upplifað hérna, eldingunum sló niður svo nálægt að hávaðinn var ærandi, mér var hreint ekki sama. Þetta stóð í góða stund en svo smádróg úr látunum og það byrjaði að rigna eins og hellt væri úr fötu, það er hið besta mál fyrir bændur og blómaræktendur. Gestirnir kvöddu með virktum og við þökkuðum fyrir góða samveru, þau drifu sig af stað heim, vildu ná heim fyrir myrkur.

Posted by Þórunn at 21:58:44 | Permalink | Comments (1) »

Friday, September 19, 2008

Við Ragna erum bloggvinkonur

Það eru líklega fimm ár síðan ég rakst á síðuna hennar Rögnu og fannst hún strax áhugaverð, skrifað og spurði hvort við gætum ekki orðið bloggvinkonur og svarið kom um hæl, að Ragna væri til í það. Við hittumst ekki fyrr en í október 2005 og þá var þessi mynd tekin af okkur

Nú var ég að lesa á blogginu hennar að hún hafi klukkað mig og ég ætla ekki að skorast undan, þó það verði svolítið erfitt fyrir mig að svara sumum spurningunum.

Fjögur störf sem ég hef unnið:

Fyrsta starf mitt var sem símadama á símstöðinni á Vopnafirði,
annað starfið var umönnun aldraðra á Hrafnistu Reykjavík,
þriðja starfið var í Glerugnaversluninni Linsunni í Reykjavík, þar var ég í 12 ár
fjórða starfið sem sjónþjálfi á Sjónstöð Íslands, þar var ég í 14 ár eða þangað til Palli lokkaði mig til að flytja til Portúgal

Fjórar uppáhalds bíómyndir:

Þessi spurning er erfið því ég hef ekki farið á bíó í átta ár svo það verða ekki nýjar myndir sem ég nefni. En það er á dagskrá hjá okkur að fara í bíó og sjá Mama Mia

Pritty woman fannst mér góð mynd
Piano er afar sérstök og góð mynd (á hana á diski)
Börn náttúrunnar fannst mér svo hugljúf og mannleg
Disclosure (man ekki hvað hún heitir á íslensku) með Michael Douglas og Demi Moore

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Vopnafjörður
Reykjavík
Svíþjóð
Portúgal

Fjórir sjónvarpsþættir
:

Ég verð að játa að ég horfi mjög lítið á sjónvarp en segi samt
Spaugstofan (horfið á hana í tölvunni)
fleira get ég ekki nefnt í þessum flokki

Fjórir staðir sem ég hef farið á í sumarfrí:

Gran Canarí
Majorca
Kuala Lumpur Malasía
Madeira
Keyrt bæði um Spán og Portúgal, ekki dvalið lengi á hverjum viðkomustað

Fernt matarkyns sem mér finnst gott:

Kjúklingur
Lax og annar nýr fiskur (fiskisúpan hennar Rögnu)
Saltfiskur að hætti Portúgala, margar útgáfur
Marens/ávaxta bomban hennar Sigrúnar minnar

Fjórar bækur:

Hrafninn eftir Vilborgu Davíðsdóttur
Aska eftir Yrsu Sigurðardóttur
Karitas-án titils eftir Kristínu Marju Baldursdóttur
Bækurnar hans Arnaldar Indriðasonar

Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:

Madeira, mig langar þangað aftur
Sigling á stóru skipi um Miðjarðarhafið
Skoða mig um í Frakklandi
Skoða mig um í Þýskalandi

Svo er komið að því að klukka, ég sé ekki betur en að þeir sem gera vart við sig á síðunniminni minni séu allir búnir að svara þessum spurningum, en ef einhverjir fleiri gefa sig fram skal ég klukka þá.

Posted by Þórunn at 11:26:09 | Permalink | Comments (7)

Tuesday, September 16, 2008

Að gleðja augað

Ég frétti að veðrið væri frekar leiðinlegt á Íslandi núna svo mér datt í hug að setja inn nokkrar myndir sem ég tók nýlega af blómunum mínum

Og með þessum blómum fáið þið heilræði úr dagatalinu mínu.

Breiddu út faðminn og taktu utan um einhvern sem þú elskar, það gerir ykkur báðum gott.

Posted by Þórunn at 22:19:37 | Permalink | Comments (3)

Monday, September 15, 2008

Endurvinnsla

Nú er mikið talað um flokkun sorps og endurvinnslu, hér fáið þið að sjá hvernig ég endurvinn plastpokana sem maður fær frítt og ótakmarkað í flestum verslunum hérna. Ég fann uppskriftina af þessari skjóðu á netinu og þetta er mín útgáfa.

Svona er þetta gert, brjóta pokana saman eftir endilöngu, tvisvar sinnum, klippa síðan þvert á pokann ca 1 cm breiða búta (fer eftir því hvað pokarnir eru þykkir, það er erfiðara að hekla úr þykkum pokum) og krækja þeim síðan saman eins og sést á myndinni, herða svo hnútinn varlega þar til hann er orðinn mjög lítill og halda svo áfram að bæta við lengjuna og hekla þar til þeirri stærð er náð sem þið óskið.

Ég heklaði þetta í hring og svo 9 cm breiða lengju sem ég saumaði við botninn. Þetta geta orðið hinar skrautlegustu skjóður, gaman að velja saman poka með fallegum litum. Ég mátti ekkert vera að því að bíða eftir að fá einhverja sérstaka liti eins og sést á handahófskendri litasamsetningu hjá mér.

Posted by Þórunn at 10:16:41 | Permalink | Comments (5)

Wednesday, September 10, 2008

Komin heil heim

Þá erum við komin heim eftir uþb. 1000 km keyrslu. Ég held að ég sé bara að verða heilmikill ökuþór, lét mig ekki muna um að keyra nærri 500 km í gær. En þetta var mjög skemmtileg ferð, við fórum bæði um hinar miklu sléttur Alantejo þar sem skiptast á akrar, olivu og korktré og líka fjöllin sem eru þar á milli ásamt því að skoða lítil þorp niðri við sjó og inni í landi. Þessi þorp eru flest svo lítil að það finnst ekki orð um þau í ferðamannabókum en samt gaman að skoða þau. Við höfðum það þannig í þetta sinn að við leituðum okkur að gistingu þegar við komum á stað sem við gátum hugsað okkur að skoða vel og það reyndist auðvelt og lærdómsríkt að gista hjá “alþýðufólki” en ekki á Hótelum.
Það var til dæmis gaman að koma í þetta þorp þar sem sást varla manneskja á ferli en auðvitað var kirkjan á sínum stað nýmáluð og fín

sumir halda því fram að himininn sé hvergi eins blár og á Íslandi, en hvað um þetta?

Þarna var líka flottasta almenningssalerni sem ég hef séð

Svo komum við í annað lítið þorp sem heitir St. Clara þar var líka kirkjan það fyrsta sem blasti við,
tveir menn áttu leið um götuna, sitjandi í kerru sem asni dróg, en okkur fannst stinga dálítið í stúf að tveir lögregluþjónar stóðu og fylgdust með umferðinni inn í þetta friðsæla þorp.

Það hafði greinilega verið kirkjuhátíð um helgina eftir skraytingunum að dæma

Ég lét mig hafa það að taka dansspor við þessa skemmtilegu styttu á einum viðkomustaðnum,
ég fékk nú hornauga frá fólki sem átti leið framhjá, en þar sem enginn þekkir mann……

Mikið fannst mér gaman að keyra yfir þessa 13 km löngu brú sem er skammt frá Lissabon, Palli tók þessa mynd ég keyrði frekar hægt til að njóta útsýnisins.

Og svo er þessi sérkennilega brú nálægt Tomar, þarna vorum við á heimleið og Palli auðvitað ljósmyndarinn

sumir geta tekið góðar myndir þó þeir sjái ekki til að keyra

Posted by Þórunn at 20:53:29 | Permalink | Comments (7)

Saturday, September 6, 2008

Nú bregðum við okkur af bæ

Það er svo sem ekkert nýtt að við skreppum í ferðalag, við ætlum að leggja af stað á morgun og halda í suður. Verðum á sveimi um Alantejo sléttuna sunnan og austan við Lissabon. Á meðan sveima Vespurnar í kringum Anisplöntuna sem er komin með helling af fræjum. Matild er búin að taka að sér að gefa Prinsinum að borða. Þið verðið örugglega vör við það hvenær ég kem heim aftur, á meðan óska ég ykkur öllum góðra daga, bless i bili.

Posted by Þórunn at 21:54:35 | Permalink | Comments (3)