Sunday, November 30, 2008

Í faðmi fjölskyldunnar

Mér fannst dóttir mín orða það svo fallega á Facebook þegar hún lét vita að hún hefði farið heim af spítalanum á föstudaginn,

í faðm fjölskyldunnar,

hvar er betra að vera en í hlýjum faðmi fjölskyldunnar, sérstaklega að aflokinni erfiðri aðgerð? Hún er semsagt komin heim og mun taka það rólega næstu vikurnar á meðan hún nær sér eftir þetta. Hún sendir ykkur öllum þakkir, sem hafið hugsað og skrifað kærleiksríkar kveðjur, hún metur þær mikils.

En snúum okkur nú að veðrinu í okkar dal, það er loksins farið að rigna og í gær gekk á með þrumum og eldingum ásamt ausandi rigningu, sem sjá má á þessum myndum. Þetta er sjaldgæf sjón að sjá Pálmana og rósabeðið á rigningarmynd

og þegar horft er út um gluggann sem snýr að húsi Manuels og Matild, sést hvernig vatnið fossar af þakinu hjá þeim

en aðeins augnabliki síðar gerði haglél svo að jörðin varð hvít eitt augnablik, en þegar hitastigið er +5° þá er þetta fljótt að bráðna en samt voru smáhaugar eftir,  þetta er mesti snjór sem ég hef séð við Austurkot, það var vissara að flýta sér að taka myndir áður en hann hvarf

það settist meira að segja svolítil snjórönd á þakið á bílskúrnum.

Þegar þessar vetrarhörkur dundu yfir, vorkenndi Palli svo Prinsinum að hann kom með hann inn og bauð honum að leggjast á púða í ruggustól, hann varð svo hissa (Prins) að hann ætlaði ekki að þora að leggjast niður en starði undrandi í kringum sig til að kanna hvert hann væri kominn. Á endanum slakaði hann á og lagðist niður og lét fara vel um sig og fannst líklega að hann væri loksins kominn í höllina sína, þó það væri bara Austurkot í Vale Maior.

hann er ennþá svolítið stressaður á þessari mynd

Posted by Þórunn at 10:53:18 | Permalink | Comments (6)

Wednesday, November 26, 2008

GÓÐAR FRÉTTIR

Það óvænta gerðist áðan að Sigrún mín hringdi til að láta mig vita að hún er að hressast. Ekki er annað að heyra en aðgerðin hafi hafa tekist vel og virðist batinn á réttri braut. Þið getið nærri hvort ég er ekki glöð og miklu fargi af mér létt, eins og fjölskyldunni allri. Ég þakka enn og aftur öllum sem hafa skrifað hughreystandi orð hérna á síðuna, það hefur gefið mér mikið.
Það er best að setja hérna inn mynd sem ég tók af Sigrúnu á Akureyri haustið 2007, eftir frumsýninguna á leikritinu Ökutímar, þar sem Lovísa (Lay Low) sá um tónlistina.

Posted by Þórunn at 13:54:52 | Permalink | Comments (5)

Tuesday, November 25, 2008

Fréttir

Þá er búið að fjarlægja óboðna gestinn úr höfði dóttur minnar. Aðgerðin er sögð hafa tekist vel og dvelst Sigrún á gjörgæslu í 24 tíma eftir aðgerðina, ætti að vera flutt á venjulega stofu fyrir hádegið í dag. Ég læt ykkur vita þegar ég frétti nánar af líðan hennar, þakka ykkur öllum fyrir góðar kveðjur og bænir.
Posted by Þórunn at 09:35:40 | Permalink | Comments (4)

Thursday, November 20, 2008

Slóðin á Jólalista Þórunnar

Ég bjó til sérstaka jólasíðu fyrir ein jólin en hef slóðina þangað aðeins inni, á þessum árstíma. Þið finnið slóðina í flokknum “Síðurnar mínar” neðarlega til hægri. Læt hérna með mynd sem ég saumaði af Austurkoti.

Posted by Þórunn at 09:50:34 | Permalink | Comments (3)

Wednesday, November 19, 2008

Appelsínur

Nú er kominn sá árstími þegar appelsínurnar þroskast á trjánum. Það er ekki annað að sjá en við fáum nóg af þeim miðað við þessa mynd. Greinarnar svigna undan þunga ávaxtanna sem stækka og gulna með hverjum deginum sem líður. Appelsínurnar eru frábrugðnar öðrum ávöxtum með það að þær haldast óskemmdar a trjánum fram á sumar, þegar epli, perur, plómur og annað falla fljótlega af trjánum eftir að þau þroskast.

Við fórum í gróðrarstöð í gær og keyptum nokkrar Stjúpur, sem lifa vel hérna yfir veturinn, ég setti þær niður í beðið á veröndinni með dyggri hjálp Prins, sem lætur sér ekkert óviðkomandi sem gerist á þessum bæ.

Ég þakka ykkur sem hafið skilið eftir góðar kveðjur varðandi dóttur mína, nú er komin dagsetning á aðgerðina sem verður 24. nóvember. Við vonum bara að þetta takist vel og hún verði laus við þennan óbærilega höfuðverk sem hefur hrjáð hana undanfarið.

Bestu kveðjur til ykkar allra, vonandi fer nú ástandið í þjóðfélaginu að komast á beina braut, ég treysti mér ekki til að taka þá í umræðunni sem er í gangi, það eru nógu margir sem telja sig hafa hina einu sönnu lausn á málunum og vonandi geta menn sameinast um að gera það sem best er til að leysa úr þeim erfiðu málum sem nú steðja að.

Posted by Þórunn at 09:59:03 | Permalink | Comments (5)

Tuesday, November 11, 2008

Haustlitir

Nú er farið að hausta hér í Portúgal, dagarnir styttast og það kólnar í veðri, sérstaklega á nóttunni.
En það er ekki alslæmt því ég get endalaust dáðst að haustlitunum á gróðrinum. Það eru fá tré hér í garðinum sem fella laufið með fallegum litum á haustin svo það var drifið í því fyrir nokkrum árum að gróðursetja eitt tré sem gefur alveg einstakt litaskrúð áður en það fellir laufið. Held að þetta sé Hlynur.
Svona er hann núna séð frá húsinu

og svo eru litirnir ennþá skrautlegri á þeirri hlið sem vísar út að götunni, ótrúlega fallegt.

Í forgrunni er Yucca sem einu sinni var pottablóm en nú orðin eins og tré, það er góð spretta í Austurkoti.
Posted by Þórunn at 13:28:19 | Permalink | Comments (4)

Saturday, November 8, 2008

Prins

Það er víst kominn tími til að segja fréttir af Prins. Hann heldur áfram að fitna og dafna, enda er hann óspar á að láta vita af sér þegar við göngum út eða inn. Hann flækist svo fyrir fótunum á okkur að við verðum að passa okkur að stíga ekki á hann. Þegar við ætum að skreppa eitthvað á bílnum stillir hann sér fyrir aftan bílinn þegar ég ætla að bakka út úr bílskúrnum, sem betur fer er myndavél aftan á bílnum svo ég sé ef hann er að flækjast þar fyrir, en oftast tekur Palli hann í fangið á meðan ég bakka út. Ég tók þessa mynd af þeim um daginn þegar ég var búin að bakka út úr skúrnum og eins og sjá má er hann mjög ánægður með að vera í fanginu á Palla.

Við erum búin að bjóða Matild og Manuel í mat á morgun, þau koma hingað um hádegið þegar messan er búin. Það er alveg fastur liður hjá þeim eins og flestum íbúum þorpsins að sækja messu á hverjum sunnudegi.
Posted by Þórunn at 21:22:56 | Permalink | Comments (4)

Saturday, November 1, 2008

Safnað í sarpinn

Nú er lífið að færast í eðlilegt horf í Austurkoti. Við fórum á markaðinn á miðvikudaginn og keyptum kálplöntur til að setja niður, svo keyptum við Marmelos ávexti sem eru notaðir til sultugerðar, þrátt fyrir að við eigum þrjú slík tré í garðinum gáfu þau enga ávexti þetta árið.
Á markaðinum er líka hægt að kaupa margar tegurndir af mjöli, við keyptum rúgmjöl til að prófa uppskrift af rúgbrauði sem var í Morgunblaðinu um daginn. Palli setti niður kálplönturnar, svo bökuðum við rúgbrauðið, sem reyndist alveg sérlega gott og ég sauð sultuna í dag og setti á krukkur. Mikið er það góð tilfinning að eiga eitthvað í búrinu og kál sem verður hægt að borða eftir nokkrar vikur.  Hér er mynd af mér við að líma miða á sultukrukkurnar og ef vel er að gáð sést rúgbrauðið góða á skurðarhnífnum.

Posted by Þórunn at 20:31:21 | Permalink | Comments (8)