Tuesday, December 30, 2008

Hátíðin að baki

Þetta voru óvenjuleg jól hjá okkur vegna þess að Palli fékk slæmt kvef sem varð til þess að við afþökkuðum þrjú matarboð sem okkur stóðu til boða. Við vorum þess vegna heima í rólegheitum og hittum fáa. Við þökkum kærlega fyrir allar fallegu kveðjurnar sem við fengum og svo skemmtilega vildi til að ég heyrði lesna jólakveðju til okkar í útvarpinu á Þorláksmessu. En nú er Palli að jafna sig og við kunnum okkur ekki læti í dag þegar sól skein í heiði og hitinn fór í +18°, það er gott að geta þurrkað þvottinn sinn úti á snúru og nú er ég búin að strauja og ganga frá. Svo kveikti ég líka í garðaúrgangi og pálmagreinum sem Palli kepptist við að saga af öðrum pálmanum sem virðist standa í vegi fyrir að sendingin frá gervihnettinum nái á diskinn. En það vildi svo til eina nóttina um daginn að það gerði dálítið rok sem varð til þess að stóri diskurinn úti í garði lagðist á hliðina, hann virðist óskemmdur en okkur hefur ekki tekist að setja hann á nákvæmlega sama stað svo að það næst hvorki sjónvarp né útvarp Reykjavík. Við fórum í gær og keyptum okkur nýjan myndlykil og pöntuðum mann heim til að stilla diskinn, hann hefur ekki tíma fyrr en á laugardaginn enda koma áramótin inn í miðja vikuna. Ég set hér inn nokkrar myndir af ólíkum jólatrjám, fyrst er það tré úr járni sem ég er búin að eiga í ein 15 ár og hef skreytt það með ýmiskonar glingri en að lokum festi ég litla seríu á það

svo var ég að tala við Siggu vinkonu mína um daginn og dáðst að kortahaldara sem hún á og þá opnuðust augu mín fyrir því að litla tréð mitt er sennilega ætlað til að halda kortum, serían var tekin af og kort klemmd á það í staðinn, mér finnst það koma vel út

svo er það ljósatré úr gipsi, mamma mín átti það og því fylgja góðar minningar

Svo óska ég ykkur öllum gleðilegs árs og þakka samfylgdina
 hvort sem hún er löng eða stutt.

Posted by Þórunn at 19:52:03 | Permalink | Comments (6)

Wednesday, December 24, 2008

Hátíðarkveðjur

Elskulegu vinir og ættingjar, um leið og við þökkum fyrir allar fallegu og hlýlegu kveðjurnar sem við höfum fengið síðustu daga, óskum við þess að þið eigið frið og gleði í hjarta á þessari hátíð ljósins. Látið brosin ykkar og hlýleg faðmlög smita út frá ykkur, þannig að sem flestir nái að skilja sorg og reiði að baki sér yfir hátíðirnar.

Bestu kveðjur frá okkur í Austurkoti sem er nú ljósum prýtt eins og vera ber.

Posted by Þórunn at 13:00:32 | Permalink | Comments (4)

Thursday, December 18, 2008

Það er nóg að gera

í öllu öðru en að undirbúa hátíðina sem kemur í næstu viku. Tölvan hjá Palla er búin að vera með óþægð og þrátt fyrir að við höfum kallað til okkar mann í tölvuviðgerðum, lagaðist ekkert við það. Svo við fórum með gripinn á verkstæði í Albergaria þar sem við létum gera við tölvur áður en við komumst í samband við þann sem hefur hjálpað okkur undanfarin ár. Þar var okkur sagt að sennilega væri harði diskurinn ónýtur og bauðst maðurinn til að setja nýjan disk í tölvuna til að sjá hvort hann hefði ekki rétt fyrir sér. Trúlega fáum við tölvuna á morgun. Svo höfum við verið að gera tilraunir til að ná sjónvarps útsendingum frá RUV sem eru sendar um gervihnött, það dugði ekki að fá sérstakt kort frá útvarpinu, heldur þurfti líka sérstakt hulstur til að setja kortið í og það var ekki hlaupið að því. Við vorum á flakki í allan dag til að hafa upp á einhverjum sem seldi svona hulstur og það tókst á endanum en dugði ekki til svo við verðum að fara aftur á morgun og jafnvel að kaupa okkur nýjan afruglara því sá sem við erum með er orðinn svo gamall að hann hefur ekki réttu tæknina til að ná sendingunni. En við náum rás1 og 2 í útarpinu og finnst það mjög heimilislegt. En við munum samt byrja daginn á því að fara á Litlu jólin í leikfiminni okkar, þar koma allir með eitthvað góðgæti til að setja á borðið og svo smakkar hver hjá öðrum. Ég lufsaðist til að baka eina smákökusort og bjó svo til ostapinnakúlu til að fara með. Þetta er mynd af ostakúlunni.

Posted by Þórunn at 22:12:51 | Permalink | Comments (6)

Saturday, December 13, 2008

Jólastemming

Við notuðum tækifærið í gær, þegar létti til eftir rigningardaga og brugðum okkur til Viseo sem er bær 65 km. inni í landi. Þar var opnuð stór verslunarmiðstöð fyrr á árinu og nú langaði okkur að sjá hvernig skreytingum væri háttað fyrir jólin. Þessi “kringla” er kölluð Íshöllin og er útlit, litir og form hússins sótt ma. til Grænlands. Litirnir eru bláir og hvítir, gosbrunnur á jarðhæð er í laginu eins og kajak og fleira eftir því. Það vantaði ekki skrautið sem var stílhreint og í anda hússins. Mér fannst ljósaskreytingin minna á snjókúlur og  klakaveggi

Jólatréð var gert úr smáum speglum sem minntu á klaka

Á efstu hæðinni eru margir veitingastaðir, það passaði fyrir okkur að fá okkur hádegismat og eftir matinn fórum við út á stórar svalir þar sem fólk getur setið á sumrin og notið útsýnis yfir borgina og sveitirnar í kring. Mér fannst frekar vera hauststemming þar núna, eftir jólastemminguna inni.

Posted by Þórunn at 10:57:54 | Permalink | Comments (1) »

Thursday, December 4, 2008

Nokkrir kaldari dagar

Það er frekar óvenjulegt hér um slóðir hitinn fari niður fyrir frostmark á nóttunni, en þetta er búið að gerast nokkrum sinnum undanfarið. Það hefur dofnað yfir rósunum eins og eðlilegt er á þessum árstíma, nú fer ég bráðum að klippa þær allar niður til að gefa þeim hvíld. Svona voru þær einn morguninn. En mér finnst þetta nú líka fallegt.

Svo kom að því að mér fannst mig vanta eitthvað hlýtt um hálsinn svo ég tók fram prjóna og garn sem ég átti og prjónaði af fingrum fram, þetta varð útkoman og ég held að þetta sé ágætis “hálsvermir” ætla að prófa hann á morgun þegar við förum í leikfimina.

Posted by Þórunn at 21:23:03 | Permalink | Comments (5)