Saturday, January 31, 2009

Nú erum við að hressast

Maður verður eitthvað svo andlaus við að vera með pest að mér hefur ekki dottið neitt í hug, til að skrifa um. En nú erum við bæði að ná okkur eftir slæmar kvefpestir svo það er engin afsökun lengur.
Það hefur verið mikið að gera hjá Prins síðustu vikurnar, hann hefur horfið heilu dagana og varla mátt vera að því að koma heim til að borða. Ég hef grun um að hann sé að eltast við einhverjar kisu-stelpur hér í nágrenninu. En nú virðist þetta vera gengið yfir og hann kemur og biður um mat og svo fær hann að leggja sig á eftir, á sinn einkapúða í ruggustól. Ég var með myndavélina úti í glugga um daginn og sá þá einn af keppinautum hans fyrir neðan eitt tréð í garðinum, hugðist smella einni mynd af honum en útkoman varð þessi, hvítt strik á leiðinni upp í tré. Hann stökk upp í tréð um leið og ég smellti af. Þetta er hálfgerð felumynd.

Posted by Þórunn at 21:40:20 | Permalink | Comments (6)

Friday, January 23, 2009

Bóndadagur

Bóndadagur, bóndadagsblóm, þorramatur, þetta klingir nú í eyrum frá ruv. Ég kemst ekki í blómabúð og engan þorramat er hér að fá svo ég segi eins og karlinn sem eldaði naglasúpuna, “hafa skal það sem hendi er næst og hugsa ekki um það sem ekki fæst”. Ég sæki bara mynd af blómum í myndageymsluna mína og elda pottrétt úr svínakjöti sem Manuel nágranni kom með færandi hendi í gærkvöldi.

Þessi mynd var tekin í lok apríl 2006.

Posted by Þórunn at 10:38:57 | Permalink | Comments (2)

Friday, January 16, 2009

Sumarblóm á miðjum vetri

Það hefur verið óvenjumikið um næturfrost undanfarið, þó er hlé á því núna og kemur þá rigning í staðinn. Ég var farin að óttast um sumarblómin mín og kaktusana sem eru hér á veröndinni og breiddi acryldúk yfir pottana á kvöldin. Svo fékk ég þá hugmynd að nota yfirbreiðsluna yfir róluna sem er bara úti á sumrin, þá nota ég  uppistöðuna fyrir róluna og læt pottana þar undir og hef plastið yfir á nóttunni. Það eru tveir rennilásar á yfirbreiðslunni svo það er auðvelt að opna hana á daginn. Þetta gefst svo vel að nú eru sumarblómin farin að blómstra og kaktusarnir lifa líka góðu lífi í þessu heimatilbúna gróðurhúsi. Það má segja að þetta sé margnota róla og yfirbreiðsla.

Minn ágæti eiginmaður á afmæli í dag, við skruppum til Aveiro og borðuðum á góðum veitingastað fórum svo heim og bökuðum eplaköku. Svona er það þegar árin færast yfir þá veit maður ekkert betra en borða góðan mat. Nú dugar víst ekkert annað en fara að hafa gát á því hvað maður lætur ofan í sig.

Posted by Þórunn at 21:13:23 | Permalink | Comments (4)

Thursday, January 8, 2009

Ljósin loga

Ég ætla að fara að fyrirmælum frá Íslandi um að láta hvítu ljósin loga svolítið áfram. Setti eina seríu meðfram glugganum sem snýr út í garðinn, svona kemur það út.

Hér hefur verið nokkuð svalt sérstaklega á nóttunni, þá er gott að eiga dúnsæng.

Mér fannst svolítið skemmtilegt að sjá tunglið á lofti einn seinnipartinn á meðan sól var enn á lofti.

Posted by Þórunn at 19:31:14 | Permalink | Comments (3)

Sunday, January 4, 2009

Sól hækkar á lofti

Eins og ljósið sést í hinum enda jarðgangnanna, birtist sólin aftur eftir storminn.


Þessa mynd tók ég út um stofugluggann kl: 10 í morgunn og finnst hún fara vel með orðunum sem ég setti inn hér á undan og vil gera að mínum orðum til ykkar, varðandi hið nýbyrjaða ár.
Posted by Þórunn at 10:30:16 | Permalink | Comments (2)

Friday, January 2, 2009

Það er komið nýtt ár

Ég þakka ykkur heimsóknirnar hingað, símtöl og tölvuspjall. Áramótin voru róleg hjá okkur að vanda, við borðuðum kvöldmatinn snemma og horfðum svo á sjónvarpið, sáum áramótaskaupið í tölvunni og fannst það takast vel. Það fengu margir kaldar kveðjur og beitt spjót í sig.
Svo horfðum við á tónlistaþætti í sjónvarpi, bæði frá Galasíu og Portúgal þar var mikið fjör en þegar maður þekkir ekki skemmtikraftana er ánægjan ekki eins mikil. Jæja ég þarf ekkert að kvarta yfir því. Við fengum senda diska frá Íslandi, sem heita Manstu gamla daga?  og erum búin að hlusta mikið á þá. Þegar nýja árið gekk í garð fórum við aðeins út á bílaplan í þeirri von að sjá flugelda en sú von brást, hér eru menn bara með rakettur sem springa með hávaða en senda ekki frá sér þá ljósadýrð sem við eigum að venjast. En hér fara menn með potta og pönnur út á svalir lemja í það með sleifum og slá saman potthlemmum, úr þessu verður mikill hávaði sem fer ekki vel í hundana sem eru í hverju húsi, þeir verða yfir sig hræddir og láta heyra vel í sér. Ég tók stutta videómynd sem sýnir ekki mikið en hávaðinn er því meiri,  jú húsið hjá Matild og Manuel er fallega upplýst.
Ég kann ekki að setja inn videómyndina en hérna er slóðin á hana.

http://www.youtube.com/watch?v=66J-SdtMWHY

Posted by Þórunn at 21:20:22 | Permalink | Comments (1) »