Afmælisveisla og ferðalag
Þessa mynd tók ég af ofninum þegar Matild var að baka brauð, askan og glóðin er fremst á brúninni
Svo skelltum við okkur í fyrsta ferðalag sumarsins á miðvikudaginn haldið var norður til borgar sem heitir Guimegáes. Þar gengum við um í rjómablíðu skoðuðum gosbrunna og gömul hús og fengum okkur svo að borða á notalegum matstað sem við rákumst á.
Svo keyrðum við þjóðveginn heim með viðkomu á stað sem kallast Ármót, vegna þess að þar sameinast tvær ár sem renna til sjávar í Porto.
Það var líka þessi unaðsblíða, hitinn + 22° og logn svo að bæði brýr og hús spegluðust í lygnri ánni.
Þetta var mjög góður dagur, ferðin tók tæpa 10 tíma.