Hverfum eina viku aftur í tímann, þann dag fórum við ásamt öðrum heldri borgurum í dagsferð til staðar sem heitir Torres Vedras. Á þeim stað söfnuðust saman nokkur hundruð heldri borgarar af svæðinu frá Albergaria A Velha til Torres Vedras til að sýna sig og sjá aðra. Þáttakendur frá hverju sveitafélagi fyrir sig höfðu æft atriði eða dansa sem þeir sýndu þarna. Við sýndum auðvitað okkar regn dans sem var vel við hæfi því það rigndi meira og minna þennan dag en hékk þó þurrt rétt á meðan við sýndum okkar atriði
við sýndum líka hattadans, einskonar línudans sem tókst bara vel
Á svæðinu var líka heilsusýning í skemmu, þar var ég svo heppin að vera boðið handanudd
Palli smellti þessari mynd af mér og leikfimikennaranum okkar, sem heitir Tanja
Svo sést hópurinn ganga að rútunum eftir stutt kaffistopp á bensínstöð á leiðinni heim, það voru allir ánægðir með daginn þrátt fyrir rigningu.