Sunday, May 31, 2009

Nótt í Lissabon

Við fórum í eina af okkar stuttu ferðum á föstudaginn og laugardaginn, fórum í þetta sinn með rútu ásamt tæplega fjörutíu manns hér úr nærsveitunum. Við þekktum engann í hópnum en könnumst við að hafa séð nokkra. Aðaltilganur ferðarinnar var að fara í leikhús í Lissabon og skoða austurlenskan garð sem er nýbúið að opna á vínbúgarði í Bombaral. Við gistum eina nótt í Caldas de Rainha en þar höfum við komið áður og meira að segja gist á sama hóteli. En þessi bær er þekktur fyrir sérstaka leirmunagerð og set ég hér inn myndir af munum sem skreyta veggi matsalarins á hótelinu.

 

Meira að segja vorum þarna flísar með Prinsinum

Og á barnum héngu drykkjusvín

Það má kalla þessa mynd “Nótt í Lissabon” hún er tekin kl 21, við eina aðalgötuna í Lissabon, þegar við vorum að fara í leikhúsið sem er þarna bakatil.

Hér er mynd af innganginum í leikhúsið, þar var flutt revía samin um ástandið í þjóðfélaginu í dag, það eru fleiri Spaugstofur enn á Íslandi þar sem gert er grín að þekktum persónum og ýmsu sem gerist og ekkert skilið undan. Mér fannst fróðlegt að sjá þessa sýningu þó ég skilji bara hrafl í tungumálinu þá náði ég innihaldinu vegna frábærs leiks og látbragðs.

Revíunni lauk ekki fyrr en eftir miðnætti og þá áttum við eftir að keyra klukkutíma leið á hótelið.
Ég ætla að setja inn aðra færslu um það sem við sáum seinni daginn, það er mikið myndefni og vonandi verð ég dugleg og set það inn fljótlega.
En svo fer að styttast í að við skreppum til Íslands, ætlum að vera þar í tvær vikur frá 11. - 25. júni. Gunnar sonur minn er að koma frá Malasíu, ég hef ekki séð hann í 10 ár svo það er tími til kominn að hitta hann.

Posted by Þórunn at 22:05:26 | Permalink | Comments (3)

Monday, May 25, 2009

Gott ávaxtaár

Það er búsældarlegt í ávaxtagarðinum núna, öll trén eru þakin af ávöxtum og ég er hrædd um að ef ég grisja þetta ekki þá gætu margar greinar brotnað undan þunganum þegar ávextirnir eru fullþroskaðir. Blöðin á lauknum eru líka mjög falleg og þar eru stórir laukar undir.

Svo er útlit fyrir gott rifsberjaár, runnarnir eru þaktir berjum sem eru byrjuð að roðna, en til þess að fuglarnir borðuðu ekki frá mér berin setti ég fuglafælur á snúrur yfir runnunum.
 Það eru grænar ræmur úr plastpokum og geisladiskar sem glampar á í sólinni.

Þetta verða epli

perur

og dökk fjólubláar safaríkar plómur.

Posted by Þórunn at 19:56:02 | Permalink | Comments (5)

Thursday, May 21, 2009

Sumarferðirnar hafnar

Þá erum við byrjuð á okkar árlegu sumarferðum, þær einkennast af stuttum ferðum hér í kring með hótelgistingum í eina eða tvær nætur. Í þetta sinn héldum við í suður, langaði að skoða betur Torres Vedras, staðinn sem við heimsóttum í apríl með leikfimihópnum okkar. Þá var svo mikil rigning að okkur fannst tilvalið að fara þangað aftur í góðu veðri. Þangað er þægileg dagleið eða um 240 km. Við völdum að keyra þjóðveginn þó hann sé seinfarnari en það er svo miklu skemmtilegra að keyra í gegnum öll þessi þorp og fallegu sveitir í staðinn fyrir að þjóta eftir hraðbrautinni og sjá ekkert nema veginn og skóginn meðfram honum. En mikið dæmalaust er nú þægilegt að hafa leiðsögutæki í bílnum þegar farið er í svona ferðir, þar sem vegir liggja þvers og krus og merkingum er oft ábótavant. Ég held að við værum ennþá að flækjast þarna um sveitirnar ef ekki væri GPS tækinu fyrir að fara. En það er líka nauðsynlegt að hafa gamaldags vegakort í bílnum, því auðvitað þarf maður að vera viss um hvert ferðinni er heitið og skrifa staðarnöfnin rétt inn í tækið. Við pöntuðum ekki gistingu fyrirfram, erum búin að læra af reynslunni að það er ekkert mál að finna hótel og stundum gott að geta skoðað herbergið áður en ákvörðun um gistingu er tekin. Og það brást heldur ekki núna, þegar við vorum komin að aðalgötu bæjarins blast við okkur Imperio hótel þar sem við gistum i eina nótt. Við gengum um staðinn sem reyndist ekkert mjög spennandi en veðrið var gott og við fengum gott að borða þegar maginn fór að kalla á sitt.


Þegar við litum út um herbergisgluggann okkar um kvöldið var búið að kveikja á ljóskösturum sem lýstu upp gamlar kastalarústir og litla kirkju sem er þar nærri.

Eftir morgunmat sóttum við bílinn í geymslu sem tilheyrði hótelinu þó hún væri í annari götu, en innkeyrslan í þessa bílageymslu var svo þröng að okkur þótti vissara að leggja speglana aftur með bílnum á meðan keyrt var inn og út og það var svo bratt niður að mér fannst bíllinn næstum því standa upp á endann.  Jæja þetta var nú bara smáævintýri. Þá var stefnan tekin aftur á Austurkot með viðkomu á nokkrum stöðum, það er alltaf dálítið spennandi að velja sér kaffihús því þau eru svo mörg að nánast ekkert þorp er svo lítið að þar séu ekki eitt eða fleiri kaffihús. Við vorum fyrst að hugsa um að stoppa í bæ sem heitir Leiria, þar höfum við komið áður en höfum ekkert á móti því að skoða hann aftur. En þegar við fórum að sjá skilti á Batalha fannst okkur svo langt síðan við komum þangað að tími væri kominn til að líta þar við.  Þetta er einn af merkustu stöðum Portúgals, vegna stærðar og stórfengleika kirkju/klausturs sem þar stendur. Það var einn af konungum landsins, sem hét Maríu mey að byggja kirkju henni til dýrðar ef honum tækist að vinna sigur á óvinum sem hann átti í stríði við. Sigurinn vannst svo 1385 konungurinn stóð við orð sín. Það tók um 200 ár að koma byggingunni upp, á þeim tíma réðu ríkjum sjö konungar og 14 arkitektar komu að verkinu. Það er ekki nokkur leið að gera sér í hugarlund hvernig menn fóru að því á þessum tíma að koma upp þessari stórkostlegu byggingu. Þeir sem hafa áhuga á að fræðast nánar um þetta geta farið á  http://en.wikipedia.org/wiki/Monastery_of_Batalha

Þetta er orðin svo löng færsla hjá mér að ég efast um að nokkur nenni að lesa hana, en sjón er sögu ríkari, heimsækið okkur til Portúgal og við skulum fara með ykkur á staðinn.

Posted by Þórunn at 22:07:27 | Permalink | Comments (5)

Wednesday, May 6, 2009

Nóg að gera í skógarhöggi

Við höldum áfram að grisja “skóginn” í Austurkoti, nú réðumst við í að fjarlægja alveg stóra tréð sem Palli er búinn að taka tvisvar ofan af en það spírar jafnóðum upp. Það var bæði í beinni stefnu á móttökudiskinn fyrir gervihnatta útsendingu og svo voru greinar trésins farnar að vaxa yfir síma og rafmagnslínur til nágranna okkar ofar í götunni. Þið fáið nú að sjá myndir af ferlinu frá því að Palli klifraði amk. sjö metra upp í tréð til að saga fyrst toppinn af því þar til farið er að kljúfa bolinn niður í eldivið.

Hér er Palli búinn að saga efsta toppinn


Hér er hann byrjaður að saga næsta bút, rúmlega tvo metra á lengd, þetta var allt tekið í áföngum til að koma í veg fyrir að eitthvað lenti á línunum


Svona leit tréð út eftir að sá bútur var fallinn


Hér liggur efri hlutinn, eins og ófreskja

Granni okkar Manuel mætti með sína vélsög og hjálpaði við að hluta bolinn í sundur


Og að lokum kom Rui sonur Manuels og lauk verkinu, þetta var sannarlega erfitt í +34° hita

Nú sést í Austurkot frá götunni

Ein spurning að lokum, getur einhver sagt mér hvað þetta tré heitir? ég hef hvergi fundið það í bókum

Svona er börkurinn

Posted by Þórunn at 11:00:45 | Permalink | Comments (4)