Monday, May 25, 2009

Gott ávaxtaár

Það er búsældarlegt í ávaxtagarðinum núna, öll trén eru þakin af ávöxtum og ég er hrædd um að ef ég grisja þetta ekki þá gætu margar greinar brotnað undan þunganum þegar ávextirnir eru fullþroskaðir. Blöðin á lauknum eru líka mjög falleg og þar eru stórir laukar undir.

Svo er útlit fyrir gott rifsberjaár, runnarnir eru þaktir berjum sem eru byrjuð að roðna, en til þess að fuglarnir borðuðu ekki frá mér berin setti ég fuglafælur á snúrur yfir runnunum.
 Það eru grænar ræmur úr plastpokum og geisladiskar sem glampar á í sólinni.

Þetta verða epli

perur

og dökk fjólubláar safaríkar plómur.

Posted by Þórunn at 19:56:02
Comments

5 Responses to “Gott ávaxtaár”

  1. Anonymous says:

    Ummmmmm girnilegar perur, er forfallin perusjúklingur. :)
    Kveðja af héraði
    Sigurveig.

  2. Katla says:

    VÁ! Þvílík sæla!

  3. Anonymous says:

    Heyrðu mín kæra, nú fer ég að leita að hvítkölkuðu koti! Kærust í bæinn. Gulla Hestnes

  4. Anonymous says:

    Mikið er frábært að sjá alla þessa ávexti sem eru í garðinum ykkar. Það er ekki slæmt að geta ræktað ýmislegt núna á síðustu og verstu!!!!!!!!!
    Ég segi það enn og aftur þið búið í PARADÍS.
    Kær kveðja
    Áslaug og Þór

  5. Anonymous says:

    Já kæru vinir, það er engin spurning að við búum í Paradís. Þetta er alveg dásamlegt líf, enda lifum við og njótum hvers dagst. Takk fyrir góðar kveðjur.
    Þórunn

Leave a Reply