Nótt í Lissabon
Og á barnum héngu drykkjusvín
Það má kalla þessa mynd “Nótt í Lissabon” hún er tekin kl 21, við eina aðalgötuna í Lissabon, þegar við vorum að fara í leikhúsið sem er þarna bakatil.
Hér er mynd af innganginum í leikhúsið, þar var flutt revía samin um ástandið í þjóðfélaginu í dag, það eru fleiri Spaugstofur enn á Íslandi þar sem gert er grín að þekktum persónum og ýmsu sem gerist og ekkert skilið undan. Mér fannst fróðlegt að sjá þessa sýningu þó ég skilji bara hrafl í tungumálinu þá náði ég innihaldinu vegna frábærs leiks og látbragðs.
Revíunni lauk ekki fyrr en eftir miðnætti og þá áttum við eftir að keyra klukkutíma leið á hótelið.
Ég ætla að setja inn aðra færslu um það sem við sáum seinni daginn, það er mikið myndefni og vonandi verð ég dugleg og set það inn fljótlega.
En svo fer að styttast í að við skreppum til Íslands, ætlum að vera þar í tvær vikur frá 11. - 25. júni. Gunnar sonur minn er að koma frá Malasíu, ég hef ekki séð hann í 10 ár svo það er tími til kominn að hitta hann.
Sæl vinkona.
Mikið eru myndirnar þínar flottar. Þú ert snillingur í að taka myndir. Hlökkum til að fá ykkur.
Bestu kveðjur frá ykkar vinum Siggu og Nonna.
10 ár segiru! Það hljóta að verða hamingju-endurfundir: )
Takk Sigga og Nonni, við hlökkum líka til að sjá ykkur.
Katla, þetta verða örugglega hamingju og tilfinningaþrungnir endurfundir. Ég hlakka mikið til.
Þórunn