Friday, June 26, 2009

Komin heim, ferðin gekk vel

Þá erum við búin að vera einn dag í húsinu okkar og mikið er það nú gott, þó við höfum haft það mjög gott á Íslandi er alveg yndislegt að vera komin heim. Manuel og Matild sóttu okkur á völlinn og við vorum komin heim kl: 23 í gærkvöldi eftir 18 tíma ferðalag. Við fengum góðar móttökur bæði hjá nágrönnum okkar og einnig hjá Prins, ég veit ekki hvort hann fann á sér að við værum að koma en hann sat úti á götu eins og hann væri að bíða.
En dvölin á íslandi var hin ánægjulegasta, það var ekki amalegt að fá afnot af húsi og bíl á meðan á dvölinni stóð, það voru vinir okkar Sigga og Nonni sem voru svona rausnarleg.

 Hér sést Sigga á pallinum hjá sér

og svo er það húsið þeirra séð frá götunni

Við hittum marga ættingja og vini, aldursmunurinn var mikill sá yngsti var sex vikna en sá elsti 98 ára. Það var auðvitað mikil gleði að sjá son sinn aftur hann er hér á mynd með föður-ömmu sinni sem varð 98 ára gömul viku eftir að myndin var tekin

og svo er ég hér með börnin mín tvö Sigrúnu og Gunnar

að lokum er svo mynd af yngsta fjölskyldumeðlimnum honum Ísak, ég er afasystir hanns,
það eru amma, afi og pabbinn sem dáðst að drengnum sem brosir og hjalar aðeins sex vikna gamall

Ég læt þetta duga í kvöld, það eiga eftir að koma fleiri myndir úr ferðinni.

Posted by Þórunn at 22:11:59 | Permalink | Comments (2)

Saturday, June 13, 2009

Ísland

Þá er fjörið byrjað hjá okkur á Íslandi. Við erum búin að hitta son minn sem var bara yndislegt. Svo förum við í heimsóknir í Birkihlíð og Naustabryggju í dag. Svo verður fjölskyldu-samkoma á Laugalæk á morgun, það verður örugglega gaman. Við höfum aðsetur hjá vinum okkar Siggu og Nonna í Garðabæ, ekki nóg með að hafa húsaskjól heldur lána þau okkur líka bíl, það er ekki amalegt að eiga svona vini.
Við munum halda austur fyrir fjall á sunnudagskvöld eða mánudagsmorgun.
Ef einhver hefur áhuga á að ná í okkur í síma, er númerið 6941614.
Posted by Þórunn at 12:59:12 | Permalink | Comments (4)

Wednesday, June 10, 2009

Síðasta færsla frá Portúgal, í bili

Þá erum við búin að setja niður í litlu ferðatöskurnar sem við höfum með okkur í þetta sinn og vonum svo að við sofum eitthvað í nótt en við þurfum að vakna klukkan rúmlega fimm til að leggja af stað út á völl. Manuel bauðst til að keyra okkur, við lendum svo í Keflavík klukkan rúmlega 22.
Ég reyni að koma hérna inn símanúmeri sem við munum hafa á meðan á dvölinni stendur en venjulega kaupum við okkur símakort í íslensku flugvélinni.

Mig langar til að sýna ykkur myndir af ekta flöskubursta tré. Ég man ekki eftir að hafa séð þetta fyrr, en náttúran er alveg undursamleg. Það sem meira er að þessir flöskuburstar virðast hafa eitthvað sem dregur býflugur alveg inn á milli stráanna. Hafið það gott kæru vinir við sjáumst vonandi sem flest.

Þetta tré er á aðaltorginu í Albergaria A Velha

Posted by Þórunn at 18:01:33 | Permalink | Comments (2)

Sunday, June 7, 2009

Í tilefni sjómannadagsins set ég hér inn mynd af blómavasa sem ég keypti í einni ferðinni um daginn, mér finnst svo sniðugt hvernig hægt er að láta hvert eitt bóm njóta sín

Svo ætla ég að sýna ykkur hvað Prins er farinn að færa sig upp á skaftið við Palla, hann vill hjálpa honum við allt sem hann gerir, það var eitthvað bras með að tengja heyrnartól við tölvuna

Það er best að leggjast bara á gólfið til að komast betur að þessu

Nú er þetta komið í samband og best að prófa heyrnartólin

Posted by Þórunn at 20:32:34 | Permalink | Comments (4)

Wednesday, June 3, 2009

Dagur í austurlenskum garði

Þá er kominn tími til að setja inn myndir frá seinni degi ferðalagsins um daginn. Morguninn fer í það að hlust á sölumann kynna vörur sem fyrirtækið sem skipuleggur ferðirnar, hefur til sölu. Það er í lagi að hlusta á það því þar eru eingöngu á ferð mjög færir sölumenn, ekki uppáþrengjandi en einstaklega samfærandi. Þrátt fyrir það tekst þeim ekki að selja okkur neitt en það eru alltaf einhverjir sem kaupa.
Eftir hádegismat og útskráningu af hótelinu var keyrt að smábæ sem heitir Bombaral en skammt frá honum er stór jörð þar sem stunduð er vín og grænmetisrækt, en jörðin er svo stór að eigandanum datt í hug að gaman væri að hafa nokkrar styttur þar sér og öðrum til augnayndis. Eigandinn er einn af þeim sem veit ekki hvað hann á að gera við peningana sína svo hann fékk þá hugmynd að senda nokkurhundruð tonn af marmara og granit til Kína og fá þarlenda til að höggva úr því styttur af Budda og öðrum austurlenskum guðum. Þetta er svo sett niður á víð og dreif um jörðina og gestum og gangandi boðið að fara þar um og skoða. Þar sem ég sé vanari að sjá styttur af Maríu mey og öðrum dýrðlingum hér í Portúgal þá fannst mér þetta ekki vera í réttu umhverfi en samt sem áður fróðlegt að sjá. Og nú hefst sýningin, þetta byrjaði vel, hliðið yfir innganginum er veglegt

yfir vaatnið sét í afsteypu tugum kínverskra hermanna sem fundust í gröf einhvers konungs

Ég læt myndirnar tala fyrir sig, en mér fannst þetta dálítið undarleg samsetning og hvergi var neitt að sjá sem sagði hvað hvert listaverk táknaði.

Posted by Þórunn at 16:03:05 | Permalink | Comments (2)