Wednesday, June 3, 2009

Dagur í austurlenskum garði

Þá er kominn tími til að setja inn myndir frá seinni degi ferðalagsins um daginn. Morguninn fer í það að hlust á sölumann kynna vörur sem fyrirtækið sem skipuleggur ferðirnar, hefur til sölu. Það er í lagi að hlusta á það því þar eru eingöngu á ferð mjög færir sölumenn, ekki uppáþrengjandi en einstaklega samfærandi. Þrátt fyrir það tekst þeim ekki að selja okkur neitt en það eru alltaf einhverjir sem kaupa.
Eftir hádegismat og útskráningu af hótelinu var keyrt að smábæ sem heitir Bombaral en skammt frá honum er stór jörð þar sem stunduð er vín og grænmetisrækt, en jörðin er svo stór að eigandanum datt í hug að gaman væri að hafa nokkrar styttur þar sér og öðrum til augnayndis. Eigandinn er einn af þeim sem veit ekki hvað hann á að gera við peningana sína svo hann fékk þá hugmynd að senda nokkurhundruð tonn af marmara og granit til Kína og fá þarlenda til að höggva úr því styttur af Budda og öðrum austurlenskum guðum. Þetta er svo sett niður á víð og dreif um jörðina og gestum og gangandi boðið að fara þar um og skoða. Þar sem ég sé vanari að sjá styttur af Maríu mey og öðrum dýrðlingum hér í Portúgal þá fannst mér þetta ekki vera í réttu umhverfi en samt sem áður fróðlegt að sjá. Og nú hefst sýningin, þetta byrjaði vel, hliðið yfir innganginum er veglegt

yfir vaatnið sét í afsteypu tugum kínverskra hermanna sem fundust í gröf einhvers konungs

Ég læt myndirnar tala fyrir sig, en mér fannst þetta dálítið undarleg samsetning og hvergi var neitt að sjá sem sagði hvað hvert listaverk táknaði.

Posted by Þórunn at 16:03:05
Comments

2 Responses to “Dagur í austurlenskum garði”

  1. Katla says:

    Já, virkar frekar tilviljanakennt, en hver hlutur engu að síður svo fallegur. Sérstaklega gaman að sjá myndirnar af kínversku hermönnunum, ég las einmitt um þá fyrir nokkrum árum.
    Kær kv.

  2. Ragna says:

    Já þetta virðist mjög undarlegt en mikið er nú gaman að koma á slíka staði og skoða svona listaverk.
    Kær kveðja til ykkar Palla Þórunn mín. Ég er óðum að ná mér og langar mest til að taka dansspor.

Leave a Reply