Komin heim, ferðin gekk vel
Þá erum við búin að vera einn dag í húsinu okkar og mikið er það nú gott, þó við höfum haft það mjög gott á Íslandi er alveg yndislegt að vera komin heim. Manuel og Matild sóttu okkur á völlinn og við vorum komin heim kl: 23 í gærkvöldi eftir 18 tíma ferðalag. Við fengum góðar móttökur bæði hjá nágrönnum okkar og einnig hjá Prins, ég veit ekki hvort hann fann á sér að við værum að koma en hann sat úti á götu eins og hann væri að bíða.
En dvölin á íslandi var hin ánægjulegasta, það var ekki amalegt að fá afnot af húsi og bíl á meðan á dvölinni stóð, það voru vinir okkar Sigga og Nonni sem voru svona rausnarleg.
En dvölin á íslandi var hin ánægjulegasta, það var ekki amalegt að fá afnot af húsi og bíl á meðan á dvölinni stóð, það voru vinir okkar Sigga og Nonni sem voru svona rausnarleg.
Hér sést Sigga á pallinum hjá sér
og svo er það húsið þeirra séð frá götunni
Við hittum marga ættingja og vini, aldursmunurinn var mikill sá yngsti var sex vikna en sá elsti 98 ára. Það var auðvitað mikil gleði að sjá son sinn aftur hann er hér á mynd með föður-ömmu sinni sem varð 98 ára gömul viku eftir að myndin var tekin
og svo er ég hér með börnin mín tvö Sigrúnu og Gunnar
að lokum er svo mynd af yngsta fjölskyldumeðlimnum honum Ísak, ég er afasystir hanns,
það eru amma, afi og pabbinn sem dáðst að drengnum sem brosir og hjalar aðeins sex vikna gamall
Ég læt þetta duga í kvöld, það eiga eftir að koma fleiri myndir úr ferðinni.
Posted by
at
22:11:59
Mikið eruð þið mæðgur líkar, altjént af myndinni að dæma!
Ég efa ekki að Prins hefur saknað ykkar og beðið.
Gott að heyra að Íslandsdvölin var góð.
Kær kv. frá Kötlu.
Eitt er víst Katla mín að við mæðgur eigum nóg af undirhökum, gott að eiga smá varasjóð.
Þórunn