Thursday, July 30, 2009

Ég varð hissa þegar ég fékk tölvupóst um að búið væri að flytja síðuna mína á nýjan stað og að ég hefði nóg pláss til að skrifa þar. En nú er ég farin að kunna svo ágætlega við nýju síðuna sem ég er að vinna í að ég held að ég haldi mig við hana, ég nenni ekki þessu hringli.

Verð hér eftir á http://austurkot.blogspot.com

eða þangað til þeir loka á mig þar. Bestu kveðjur

I have moved to http://austurkot.blogspot.com

Posted by Þórunn at 18:24:00 | Permalink | No Comments »

Sunday, July 5, 2009

Prins fósturpabbi

Þegar við komum heim frá Íslandi komumst við að því að Prins var búinn að taka að sér fósturbarn.
Lítill og horaður kettlingur elti hann hvert sem hann fór og gerir enn. Það er erfitt að hrekja í burtu svangar skepnur sem leita að mat hjá manni. Þess vegna höfum við látið það óátalið þó Prins bjóði honum að borða af diskinum hjá sér. Sá stutti er mjög var um sig og hleypur í burtu við minnsta þrusk eða hreyfingu. En það er gaman að sjá hvernig hann hermir allt eftir Prinsinum, eltir hann á röndum og reynir að gera eins og hann. Það er galsi í þeim stutta og hann gerir hvað hann getur til að fá Prins til að leika við sig, stundum gengur það svo langt að Prins verður pirraður og bítur í hnakkadrambið á þeim stutta sem vælir þá og hleypur í burtu en er óðara kominn aftur og gerir sér dælt við Prins.

Ég ætla að sýna ykkur nokkrar myndir af þeim félögum.

Hann var ergilegur að komast ekki inn fyrir flugnanetið

Hver getur staðist þetta augnaráð?

Posted by Þórunn at 14:43:47 | Permalink | Comments (3)

Wednesday, July 1, 2009

Nóg að gera í garðyrkjunni

Það hefur verið nóg að gera hjá okkur í garðinum síðan við komum til baka. Alveg er það með ólíkindum hvað gróðurinn getur vaxið á tveimur vikum. Bæði laukur og kartöflugrös voru horfin í arfa og komið kafgras í garðinum. Palli er búinn að slá tvisvar síðan við komum svo er hann búinn að skipta um slöngu í brunninum en það komu göt á hana á meðan við vorum í burtu, sem betur fer tók Manuel eftir því og slökkti á dælunni sem annars hefði gengið allan tímann. Ég hef verið að hreinsa til í blómabeðum og tók mig svo til í dag og tók upp allar kartöflurnar sem er um 10 kíló og er ég mjög ánægð með uppskeruna það sem við settum engar kartöflur niður þetta árið.
En uppskeran var svo léleg í fyrra að við létum hana liggja og svo gaf hún þetta af sér núna. Þetta er hægt þar sem kemur ekki frost í jörðu. Laukurinn virðist vera stór og góður, ég set inn sýnishorn af honum og nokkrum plómum sem eru orðnar þroskaðar. Sólgleraugun eru með til að sýna stærðina á laukunum.

Posted by Þórunn at 21:47:55 | Permalink | Comments (1) »