Nóg að gera í garðyrkjunni
Það hefur verið nóg að gera hjá okkur í garðinum síðan við komum til baka. Alveg er það með ólíkindum hvað gróðurinn getur vaxið á tveimur vikum. Bæði laukur og kartöflugrös voru horfin í arfa og komið kafgras í garðinum. Palli er búinn að slá tvisvar síðan við komum svo er hann búinn að skipta um slöngu í brunninum en það komu göt á hana á meðan við vorum í burtu, sem betur fer tók Manuel eftir því og slökkti á dælunni sem annars hefði gengið allan tímann. Ég hef verið að hreinsa til í blómabeðum og tók mig svo til í dag og tók upp allar kartöflurnar sem er um 10 kíló og er ég mjög ánægð með uppskeruna það sem við settum engar kartöflur niður þetta árið.
En uppskeran var svo léleg í fyrra að við létum hana liggja og svo gaf hún þetta af sér núna. Þetta er hægt þar sem kemur ekki frost í jörðu. Laukurinn virðist vera stór og góður, ég set inn sýnishorn af honum og nokkrum plómum sem eru orðnar þroskaðar. Sólgleraugun eru með til að sýna stærðina á laukunum.

Posted by
at
21:47:55
Namm namm namm
Kveðja úr Mallorca veðri á héraði.
Sigurveig.