Prins fósturpabbi
Þegar við komum heim frá Íslandi komumst við að því að Prins var búinn að taka að sér fósturbarn.
Lítill og horaður kettlingur elti hann hvert sem hann fór og gerir enn. Það er erfitt að hrekja í burtu svangar skepnur sem leita að mat hjá manni. Þess vegna höfum við látið það óátalið þó Prins bjóði honum að borða af diskinum hjá sér. Sá stutti er mjög var um sig og hleypur í burtu við minnsta þrusk eða hreyfingu. En það er gaman að sjá hvernig hann hermir allt eftir Prinsinum, eltir hann á röndum og reynir að gera eins og hann. Það er galsi í þeim stutta og hann gerir hvað hann getur til að fá Prins til að leika við sig, stundum gengur það svo langt að Prins verður pirraður og bítur í hnakkadrambið á þeim stutta sem vælir þá og hleypur í burtu en er óðara kominn aftur og gerir sér dælt við Prins.

Ég ætla að sýna ykkur nokkrar myndir af þeim félögum.
Hann var ergilegur að komast ekki inn fyrir flugnanetið
Hver getur staðist þetta augnaráð?
Posted by
at
14:43:47
Æ æ það skín alveg depurðin úr þessum augum, en hann er alveg eins og köttur sem við áttum og hét Stulli
kveðja úr 13° á héraði.
Sigurveig.
Velkomin í kotið mín kæra.Ég stæðist ekki svona augu, og þessi litli er kominn til að vera. Tvær kisur hafa selskap hvor af annarri, og nafnainnlegg á þann litla er Krúsi, nú eða Krúsa. Kærust í kotið. Gulla Hestnes
Svona litlir kisar eru ómótstæðilegir. kv. Silja Dögg